Aðalfundur Breiðfirðingafélagsins var haldinn í Breiðfirðingabúð Faxafeni 14
22. febrúar 2007
Mættir voru 48 félagsmenn.
Formaður félagsins Hrönn Harðardóttir setti fundinn, og bauð fundarmenn velkomna
Þá minntist hún látinna félaga á árinu, en þeir voru:
Einar Alexandersson
Ásthildur Magnúsdóttir
Þorbjörg G Aradóttir
Egill Hjartarson
Guðni G Sigfússon
Og risu fundarmenn úr sætum þeim til virðingar.
Þá gerði hún að tillögu sinni, að Haraldur Finnsson yrði fundarstjóri, og Hinrik Hinriksson fundarritari, og voru þeir samþykktir af fundarmönnum.
Tók nú fundarstjóri við stjórn fundarins, og var gengið til dagskrár.
Fundarstjóri las upp nöfn nýrra félagsmanna, en þeir voru:
Guðborg Hákonardóttir Engihjalla 3 200 Kópavogi
Svavar Magnússon Torfufelli 9 111 Reykjavík.
Bryndís Guðjónsdóttir Klapparbergi 27 111 Reykjavík.
Jóhannes Guðmundsson Hlégarði 29 200 Kópavogi.
Jóhannes Stefánsson Hlíðarási 2 270 Mosfellsbæ.
Björgvin Hafsteinn Kristinsson Neðstabergi 24 111 Reykjavík,
Og var innganga þeirra samþykkt einróma af fundarmönnum.
Skýrsla stjórnar:
Formaður Hrönn Harðardóttir flutti skýrslu stjórnar, og er hún birt í heild sinni á heimasíðunni.
Gjaldkeri Hörður Rúnar Einarsson las upp og skýrði reikninga félagsins.
Afkoma félagsins var mjög góð, og fjárhagsleg staða mjög sterk.
Sveinn Sigurjónsson lauk lofsorði á reikninga félagsins og störf stjórnar og gjaldkera.
Skýrsla stjórnar og reikningar samþykktir samhljóða af fundarmönnum.
Skýrslur deilda:
Hörður Einarsson flutti skýrslu Bridge deildar
Spilað er á sunnudagskvöldum, og að jafnaði á 9 borðum.
Deildin tók þátt í keppni hjá Sjálfsbjörg, og 11 sveitir kepptu á hraðsveitarmóti.
Grétar Sæmundsson flutti skýrslu minningarsjóðs.
Tekjur námu kr. 14,500,00 og gjöld voru Kr. 0
Eign í árslok var Kr. 540,536,00. Engir styrkir voru veittir á árinu.
Birgir Kristjánsson flutti skýrslu Breiðfirðingakórsins.
Æfingar hófust 11 janúar 2006, og var æft einu sinni í viku , auk nokkurra langra laugardaga. 4 mars var hið árlega Kórball, þar sem Þorrakórinn úr Dölum mætti.
26 apríl 2006 var aðalfundur kórsins. Núverandi stjórn er þannig skipuð.
Birgir Kristjánsson formaður
Þrúður Karlsdóttir varaformaður
Hildur Óskarsdóttir gjaldkeri
Sólveig Valtýsdóttir ritari
Sigþór Ingólfsson meðstjórnandi
Guðmundur Jónsson varamaður.
Vortónleikar voru 6. maí í Fella og Hólakirkju, og viku síðar var farið til Blönduóss,
Og sungið í kirkjunni,sem er frábært tónleikahús. Á leiðinni norður var komið við á elliheimilinu á Borgarnesi og sungið fyrir vistmenn.
Æfingar hófust aftur 20 sept.2006. 10.des var sungið fyrir samtökin Bergmál í Háteigskirkju. 16.des var farið vestur í Búðardal og sungið í félagsheimilinu, og daginn eftir 17.des voru Jólatónleikar í Grafarvogskirkju þar sem Regina Ósk söngkona og Peter Mate undirleikar mættu til leik með kórnum.
Kleinu og sörubakstur hefur reynst vel til fjáröflunar auk ymislegs annars.
Framundan eru vortónleikar 21. apríl í Grafarvogskirkju. Þá mun Kareskórinn frá Finnlandi koma í júní, og í haust 27 okt.eru 10 ár liðin frá endurvakningu kórsins,
Og mun þess verða minnst á þeim tímamótum.
Félagsgjald fyrir árið 2007
Fyrir fundinum lá tillage stjórnar um óbreytt félagsgjald, það er almennt félagsgjald Kr.2000,- og Kr. 1,000,- fyrir þá sem eru 67 ára eða eldri
Tillagan samþykkt samhljóða.
Kosningar:
Kosning formanns:
Sitjandi formaður gaf ekki kost á sér til endurkjörs sem formaður, en var fús að setja áfram í stjórn félagsins.
Kosningu hlaut : Snæbjörn Kristjánsson 44 atkvæði.
Aðrir hlutu 2 atkvæði eða minna.
Kosning 6 manna stjórnar:
Hörður Rúnar Einarsson 42 atkvæði
Hrönn Harðardóttir 41 atkvæði
Sigrún Halldórsdóttir 30 atkvæði
Bjarnheiður Magnúsdóttir 28 atkvæði
Inga Hansdóttir 27 atkvæði
Sigríður Karvelsdóttir 27 atkvæði
3 menn í varastjórn:
Júlíus Jónsson 19 atkvæði
Dagbjört Birgisdóttir 12 atkvæði
Marius Lund 10 atkvæði
Stjórn minningarsjóðs Breiðfirðingafélagsins:
Fyrir fundinum lá tillage stjórnar um eftirtalda aðila:
Birgir Kristjánsson
Elís G Þorsteinsson
Grétar Sæmundsson,
Og voru þeir samþykktir samhljóða.
Endurskoðendur reikninga Breiðfirðingafélagsins
Fyrir fundinum lá tillaga stjórnar um eftirtalda aðila:
Aðalmenn;
Benedikt Egilsson
Úlfar Reynisson
Varamenn:
Eggert Kristmundsson
Gísli Guðmundsson
Og voru þeir samþykktir samhljóða.
Önnur mál:
Snæbjörn Kristjánsson þakkaði auðsýndan stuðning, og kvað gaman að starfa í þessum félagsskap. Þá lauk hann lofsorði á umhirðu Breiðfirðingabúðar og störf húsvarða.
Þá ræddi hann um heimasíðu félagsins, og sagði það áform sín að koma meiru af sögu félagsins á heimasíðuna. Einnig þyrfti að fjölga í félaginu ,og ná til unga fólksins.
Gísli Gunnlaugsson, þakkað ánægjulegt samstarf liðinna ára ,og óskaði nýkjörinni stjórn til hamingju með gott kjör.
Sveinn Sigurjónsson óskaði formanni og stjórn til hamingju með gott kjör, og benti á Ritið Breiðfirðing , til fróðleiks um sögu félagsins.
Haraldur Finnsson sagði að illa gengi að afla efnis í Breiðfirðing, og bað fundarmenn að skoða í skúffurnar heima, hvort ekki leyndist þar eitthvað, og vera ekki of vandfýsna.
Þá þakkaði hann félagi Breiðfirskra kvenna fyrir góðar veitingar.
Hrönn Harðardóttir þakkaði fundarmönnum setuna,og sleit fundi kl.10,30
Hinrik Hinriksson
fundarritari