Aðalfundur Breiðfirðingafélagsins í Reykjavík var haldinn í Breiðfirðingabúð Faxafeni 14. fimmtudaginn 26. febrúar 2009.
Formaður félagsins Snæbjörn Kristjánsson setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna, en alls voru mættir 40 félagsmenn. Þá minntist hann félagsmanna sem látist höfðu frá síðasta aðalfundi, en þeir voru:
Regína Anna Hallgrímsdóttir
Ragnheiður Benediktsdóttir
Jakob Júlíusson
Olga Marta Hjartardóttir
Reynir Markússon
Jón Halldórsson
Guðlaugur Jónsson
og vottuðu fundarmenn þeim virðingu sína með því að rísa úr sætum.
Gerði formaður það að tillögu sinni, að Haraldur Finnsson yrði fundarstjóri og Hinrik Hinriksson fundarritari og voru þeir samþykktir af fundarmönnum.
Tók nú fundarstjóri við stjórn og gerði grein fyrir dagskrá fundarins.
Inntaka nýrra félagsmanna:
Eftir taldir aðilar sóttu um inngöngu í félagið.
Elísabet Ásdís Ásgeirsdóttir Írabakka 12.
Finnbogi Rúnar Andersen Höðabraut 8
Kristjana Eygló Guðmundsdóttir Nýbýlaveg 58.
Grétar Bernódusson Laugarnestanga 60
Kristín Una Sæmundsdóttir Tjarnarbraut 16
Margrét Guðrúnardóttir Kristnibraut 9
Voru þeir samþykktir af fundarmönnum.
Skýrslur stjórnar og deilda félagsins:
Snæbjörn Kristjánsson flutti skýrslu stjórnar og er hún birt í heild sinni á síðunni.
Gjaldkeri Hörður Rúnar Einarsson las upp reikninga félagsins.
Rekstrarafkoma var góð og eignastaða mjög góð.
Bridge deild: Hörður Rúnar gerði grein fyrir starfsemi deildarinnar.
Spilað er á hverjum sunnudegi kl. 7 og hefur þátttaka verið mjög góð,
einkum eftir áramótin.
Minningarsjóður Breiðfirðinga. Grétar Sæmundsson gerði grein fyrir sjóðnum.
Tekjur voru Kr. 27.000. auk vaxta Kr. 80.721.
Eign um áramót var Kr. 661.035.. Styrkur að fjárhæð Kr. 50.000.
var veittur vegna minnisvarða um skáld í Saurbæ í Dölum
Breiðfirðingakórinn í Reykjavík
Þrúður Karlsdóttir formaður kórsins gerði grein fyrir starfseminni.
Kórfélagar eru um 50 og kórstjóri er Hrönn Helgadóttir. Æft er 1 sinni í viku að jafnaði.
Vortónleikar voru í Breiðholtskirkju 3. maí þar sem flutt voru íslensk þjóðlög og kirkjutónlist. Með það efni var farið í 10 daga ferðalag til Austurríkis í byrjun júní og sungið meðal annars í Péturskirkjunni í Vín og við sumarhöllina í Vín, auk þess sem kórinn söng með kór Anton Steingrubber, sem tók á móti hópnum.
Jólatónleikar voru í Borgarneskirkju og Langholtskirkju, þar sem var húsfyllir.
Vortónleikar verða 25. apríl og er léttleikinn nú hafður í fyrirrúmi.
Umræður um skýrslur:
Guðbrandur Valdimarsson kvaddi sér hljóðs og gerði Breiðfirðingakórinn að umræðuefni. Kvað hann kórinn sér mjög hjartfólginn og það þyrfti mikla ögun í svona félagsskap, eftir langan vinnudag. Hann sagði kórstjórann mjög góðan en kannski ekki nógu grimman. Hvatti hann alla til að styrkja kórinn í hvívetna, enda gæti aðeins góður kór fyllt Langholtskirkju.
Ábending kom úr sal um að nafnið endurskoðandi væri lögvarið. Réttara væri að nota
skoðunarmenn reikninga í staðinn.
Voru nú skýrslurnar bornar undir atkvæði, og samþykktar samhljóða.
Lagabreytingar:
Tillögur um lagabreytingar
Stjórn Breiðfirðingafélagsins leggur til við aðalfund félagsins haldinn 26. febrúar 2009 eftirfarandi breytingar á lögum félagsins:
5.gr ( í núgildandi lögum)
Aðalfundur hefur æðsta vald í málum félagsins. Skal hann haldinn fyrir lok febrúar ár hvert. Aðalfund skal boða með dagskrá, þar sem greint er frá þeim málum sem stjórnin hyggst leggja fram.
Á aðalfundi skulu eftirtalin mál tekin fyrir:
a) Skýrsla stjórnar um störf félagsins frá síðasta aðalfundi.
b)Lagðir fram til samþykktar endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir næstliðið almanaksár.
c)Árgjald félagsins ákveðið fyrir yfirstandandi ár.
d)Aðalstjórn félagsins kosin, til eins árs, ásamt varamönnum.
e) Kosnir tveir endurskoðendur, til eins árs, ásamt varamönnum,
f) Önnur mál samkvæmt dagskrá.
g) Önnur mál utan dagskrár eftir því sem fundarstjóri og fundurinn sjálfur heimila.
Allir félagar eru skyldir til að taka við kosningu í þágu félagsins. Þó geta þeir sem setið hafa í stjórn 3 ár samfleytt skorast undan endurkosningu.
Stjórnarkosning skal vera skrifleg.
Þessi grein hljóði svo eftir breytingu:
5.gr
Aðalfundur hefur æðsta vald í málum félagsins. Skal hann haldinn fyrir lok febrúar ár hvert. Aðalfund skal boða með dagskrá, þar sem greint er frá þeim málum sem stjórnin hyggst leggja fram.
Á aðalfundi skulu eftirtalin mál tekin fyrir:
a) Skýrsla stjórnar um störf félagsins frá síðasta aðalfundi.
b) Lagðir fram til samþykktar endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir næstliðið almanaksár.
c) Skýrslur deilda félagsins
d) Árgjald félagsins ákveðið fyrir yfirstandandi ár.
e) Aðalstjórn félagsins kosin, til eins árs, ásamt varamönnum.
f) Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga, til eins árs, ásamt varamönnum,
g) Önnur mál samkvæmt dagskrá.
h) Önnur mál utan dagskrár eftir því sem fundarstjóri og fundurinn sjálfur heimila.
Allir félagar eru skyldir til að taka við kosningu í þágu félagsins. Þó geta þeir sem setið hafa í stjórn 3 ár samfleytt skorast undan endurkosningu.
Stjórnarkosning skal vera skrifleg.
10. gr. ( í núverandi lögum)
Stjórn félagsins hefur æðsta vald í málefnum þess milli aðalfunda og sér um allar framkvæmdir þess. Félagsdeildir, sem stofnaðar eru á vegum félagsins, stjórna sjálfar eigin málum og bera ábyrgð á fjárreiðum sínum.
Þessi grein hljóði svo eftir breytingar;
10. gr.
Stjórn félagsins hefur æðsta vald í málefnum þess milli aðalfunda og sér um allar framkvæmdir þess. Félagsdeildir, sem stofnaðar eru á vegum félagsins, stjórna sjálfar eigin málum og bera ábyrgð á fjárreiðum sínum
Skemmtinefnd er skipuð af stjórn og starfar hún í umboði hennar.
Breytingar þessar samþykktar án mótatkvæða.
Árgjald félagsins vegna 2009
Fyrir fundinum lá tillaga stjórnar um óbreytt árgjald. Það er kr. 2.000.-,
En kr. 1.000.- fyrir eldri borgara, þá sem eru 67 ára og eldri.
Tillagan samþykkt samhljóða.
Stjórnarkjör:
Kosning formanns:
Kosningu hlaut Snæbjörn Kristjánsson 38 atkvæði
Auðir seðlar 2 atkvæði
Meðstjórnendur:
Hörður Rúnar Einarsson 38 atkvæði
Hrönn Harðardóttir 31 atkvæði
Inga Hansdóttir 30 atkvæði
Sigrún Birna Halldórsdóttir 30 atkvæði
Bjarnheiður Magnúsdóttir 29 atkvæði
Sigríður Karvelsdóttir 27 atkvæði
Varamenn:
Alvilda Þóra Elísdóttir 15 atkvæði
Sturlaugur Eyjólfsson 14 atkvæði
Einar Pétursson 10 atkvæði
Skoðunarmenn reikninga:
Kjörnir voru Benedikt Egilsson og Úlfar Reynisson
Til vara Eggert Kristmundsson og Gísli Guðmundsson
Í stjórn minningarsjóðs Breiðfirðingafélagsins til eins árs:
Grétar Sæmundsson, Birgir Kristjánsson og Björn Pálsson
Önnur mál:
Snæbjörn Kristjánsson þakkaði fundarmönnum auðsýnt traust og vonaðist eftir að geta starfað eins í framtíðinni, sem hingað til.
Guðbrandur Valdimarsson sagði að nauðsynlegt væri að halda til haga upplýsingum um starfshætti og siðvenjur frá fyrri tíð t.d. um líf í Breiðafjarðareyjum, sem væri alveg að glatast. Lagði hann til að haldin væri kvöldvaka þar sem fólk segði frá hlutum í æsku og benti á Einar Pétursson sem heppilegan stjórnanda.
Einar Pétursson sagði að starfandi væri Breiðafjarðarnefnd, sem væri með fund í Stykkishólmi í apríl og og ættu þessi mál heima hjá henni.
Þá greindi hann frá því að Þjóðmynjasafnið væri að safna upplýsingum frá þeim sem sendir voru í sveit í æsku og hefðu oft séð hlutina með öðrum augum en heimamenn.
Haraldur Finnsson sagði að kreppa gæti verið lán í óláni. T. d hefði Breiðfirðingabúð verið keypt í kreppu, þegar við hefðum verið búnir að „byggja yfir okkur”, fyrir 20 árum.
Þá þakkaði hann félagi Breiðfirðskra kvenna fyrir veglegar veitingar og sleit fundi
Kl 10.15
Fundarritari
Hinrik Hinriksson