Fréttir

Fréttabréf BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS 2. tbl. febr. 2012 18. árg. er komið út. Sjá nýjasta bréfið. 

Sækja Fréttabréf Breiðfirðingafélagsins og prenta út.

 

Vísnakvöld þriðjudaginn 7. feb. 2012

Vísnakvöld verður haldið í Breiðfirðingabúð þriðjudaginn 7. febrúar.

Samkoman hefst kl. 20:00 (húsið verður opnað kl. 19:30).

Dagskráin verður í aðalatriðum sem hér segir:

Ragnar Ingi Aðalsteinsson flytur fyrirlestur um ýmsar gerðir vísna.

Kristján Eiríksson fjallar um skáldskap Gísla Ólafssonar á Eiríksstöðum.

Ingibjörg B. Frímannsdóttir flytur stutt erindi. Smekkur æskunnar. Hvers konar ljóð velja grunnskólanemar sjálfir í stóru upplestrarkeppninni?

Sitthvað fleira verður til skemmtunar sem kynnt verður síðar.

Eins og áður verður ort á staðnum. Sett verða fram yrkisefni og viðstaddir fá tækifæri til að sýna kunnáttu sína í vísnagerð. Þetta verða bæði fyrripartar til að botna og efni til að gera skil í heilli vísu. Vísurnar verða metnar af dómnefnd áður en kvöldið er liðið.

Inn á milli atriða verður farið með vísur og sagðar sögur. Gestum verður gefinn kostur á að tjá sig í pontunni ef þeir luma á góðri vísu eða stuttu skemmtilegu kvæði.

Þeir sem mæta á vísnakvöldið mega spreyta sig á að gera botna við þessa fyrriparta:

A:  Blautur snjór um bæinn hleðst,

      byljakórinn syngur.

B:   Pestir gera margan mát

      margur lasinn bælir flet.

eða að yrkja vísu, eða stutt kvæði, um eftirtalin efni, annað eða bæði:

C:  Pólitísk framtíð Íslands.

D:  Hver var besta jólabókin?

Úrlausnum skal skila við innganginn þegar mætt er á staðinn.

Bókaútgáfan Hólar veitir vegleg bókaverðlaun fyrir bestu vísurnar eða glæsilegustu botnana.

 Með bestu kveðjum

Ragnar Ingi

 

Aðgangseyrir er kr. 500 og er kaffi innifalið.

 

Bragfræðikennsla

Kvöldnámskeið í Foldaskóla dagana 17., 18., 24. og 25. janúar 2012, sjá nánar hér.

 

Fréttabréf BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS 1. tbl. jan. 2012 18. árg. er komið út. Sjá nýjasta bréfið. 

Sækja Fréttabréf Breiðfirðingafélagsins og prenta út.

 

Árshátíð á þorra

Hin árlega árshátíð Breiðfirðingafélagsins á þorra verður haldin í Breiðfirðingabúð, laugardaginn 21. janúar 2012.

Borðhald hefst stundvíslega kl. 20:00, en húsið verður opnað kl.19:00.

Veislustjóri verður Sigurður Jökulsson á Vatni.

Það verður spennandi að sjá upp á hverju Sigurður tekur.

Einnig verða sýndir þjóðdansar.

Hljómsveitin Klassik (Haukur Ingibergs) leikur fyrir dansi til kl. 02:00.

Miðaverð er kr. 5.500 kr. Þeir sem einungis koma á dansleikinn greiða kr. 1.500.

Tekið er við miðapöntunum hjá Þresti Elíassyni í síma 892-3068.

Miðasalan fer síðan fram í Breiðfirðingabúð sunnudaginn 15. janúar frá kl.16:30 til 18:30.

Einnig er hægt að sækja miða miðvikudaginn 18. janúar frá kl. 19:00 - 20:30.

Miðar sem ekki hafa verið sóttir í síðasta lagi 18. janúar verða seldir öðrum.

Félagsmenn Breiðfirðingafélagsins og gestir þeirra hafa

forgang að miðum til 15. janúar.

 

 8. jan.      Félagsvist kl. 14:00 og Bridge kl: 19.00

 9. jan.      Prjónakaffi kl. 20:00

 

Árið 2012

 

26. des. Jólatrésskemmtun fyrir alla fjölskylduna kl. 14:30.

 

Jólatónleikar Breiðfirðingakórsins

Jólatónleikar Kórsins verða haldnir í Fella- og Hólakirkju sunnudaginn 18. des kl. 20:00.

Einsöngvari með kórnum er Davíð Ólafsson, undirleikari Helgi Már Hannesson og stjórnandi Hrönn Helgadóttir.

 

Aðgangseyrir er aðeins kr. 2.000 og 1.500 í forsölu hjá kórfélögum

 

Vísnakvöld þriðjudaginn 6. des. 2011

 

Vísnakvöld verður haldið í Breiðfirðingabúð þriðjudaginn 6. desember.

Samkoman hefst kl. 20:00 (húsið verður opnað kl. 19:30)

 Dagskráin verður í aðalatriðum sem hér segir:

Þórarinn Eldjárn rifjar upp kveðskap eftir föður sinn, Kristján Eldjárn, fyrrum forseta Íslands.

Rósa Þorsteinsdóttir talar um rímnalög og flytur nokkur dæmi.

Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir kynnir væntanlega útgáfu á verkum skáldkonunnar Erlu og les nokkur valin kvæði.

Davíð Ingi Ragnarsson syngur einsöng. Undirleikari er Katalin Lörincz.

Sitthvað fleira verður til skemmtunar sem kynnt verður síðar.

Eins og áður verður ort á staðnum. Sett verða fram yrkisefni og viðstaddir fá tækifæri til að sýna kunnáttu sína í vísnagerð. Þetta verða bæði fyrripartar til að botna og efni til að gera skil í heilli vísu. Vísurnar verða metnar af dómnefnd áður en kvöldið er liðið.

Iðnú bókaútgáfa/ferðakort veitir vegleg bókaverðlaun.

Inn á milli atriða verður farið með vísur og sagðar sögur. Gestum verður gefinn kostur á að tjá sig í pontunni ef þeir luma á góðri vísu eða stuttu skemmtilegu kvæði.

Þeir sem mæta á vísnakvöldið mega spreyta sig á að gera botna við þessa fyrriparta:

 

A:  Út um grundir andans fer ég,

      á þar stund með ljóðadís.

 

B:   Menguð hatri, byggð af bjánum

      byltist jörðin margan hring.

       

eða að yrkja vísu, eða stutt kvæði, um eftirtalin efni, annað eða bæði:

 

C:  Fiskveiðistjórnunarkerfið.

 

D:  Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?

 

Úrlausnum skal skila við innganginn þegar mætt er á staðinn. Fyrir þetta verða veitt sérstök verðlaun.

 

Með bestu kveðjum

Ragnar Ingi

 

Aðgangseyrir er kr. 500 og er kaffi innifalið.

 

Aðventudagur:

  4. des. Aðventudagur fjölskyldunnar hefst kl. 14:30.

 

Myndir úr afmælisgöngu 19. nóvember 2011

 

19. nóv. Gönguferð frá Breiðfirðingabúð kl. 13:00

Mæting í gönguferðina er við Breiðfirðingabúð og verður lagt af stað kl.13:00. Gengið verður um nágrennið. Boðið verður upp á kaffi og vöfflur að göngu lokinni.

Um kl. 15:00 verður síðan föndur fyrir alla fjölskylduna.

 

Hagyrðingakvöldið var haldið 17. nóv og var undir stjórn Níelsar Árna Lund.

Hagyrðingar voru: Hermann Jóhannsson, Jón Kristjánsson, Kristján Jóhann Jónsson og Sigrún Haraldsdóttir.

Þetta var gæða-hagyrðingakvöld, vel ortar og skemmtilegar vísur.

Hér koma tvær vísur frá Hermanni Jóhannessyni.

 

Sú fyrri er um vegagerðina á Vestfjörðum:

 

Það er dugandi fólk og vinnusamt fyrir vestan

vasklegir piltar og stúlkurnar hressar og frjálsar

að sjálfsögðu vilja menn veg þeirra allra sem mestan

en vegurinn kemur nú samt ekki strax, - góðir hálsar!

 

Svo er það vísan um samtökin „Stóru systur“ og þeirra markmið:

 

Sigga stóra systir mín

situr oft við netið.

Hún er að gabba gömul svín

sem girnast lambaketið.

 

17. nóv. Hagyrðingakvöld kl. 20:00

Hagyrðingakvöldið verður undir stjórn Níelsar Árna Lund.

Hagyrðingar eru: Hermann Jóhannsson, Jóhanna Fríða Dalkvist, Kristján Jóhann Jónsson, Ragnar Ingi Aðalsteinsson og Sigrún Haraldsdóttir.

Fleiri bætast e.t.v. í hópinn.

Miðaverð er kr. 1000.- (kaffi og meðlæti innifalið í verði).

 

 

 

Breiðfirðingakórinn

Á laugardagskvöldið 12. nóv. mun Breiðfirðingakórinn vera með bjórkvöld og skemmtun í Breiðfirðingabúð.

Þar verður boðið upp á bjór, rauðvín og hvítvín á vægu verði.
Breiðfirðingakórinn syngur, ásamt gestakór, sem er Kvennakór Hafnarfjarðar og þá tekur við eitthvert léttmeti að hætti kórsins og síðan verður leikið fyrir dansi þegar líður á kvöldið.

Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir meðan pláss leyfir.

Húsið opnar kl. 20:30 og byrjar dagskráin kl. 21:00

Aldurstakmark er 20 ár

 

 

Prjónakaffi í Breiðfirðingabúð

Fram til áramóta verður prjónakaffið annan hvern mánudag, kl. 20:00 og byrjað verður 26. sept. og síðan dagana 10. okt., 24. okt., 7. nóv. og 21. nóv. Upplýsingar gefa Erla í síma 898-6747, Maddý í síma 695-2425 og Sæunn í síma 864-2201.

Takið með ykkur handavinnuna og/eða sjáið hvað verið er að gera. Kaffi og gos verður til sölu.

 

Vísnakvöld þriðjudaginn 1. nóv.

Vísnakvöld verður haldið í Breiðfirðingabúð þriðjudaginn 1. nóvember.

Samkoman hefst kl. 20:00 (húsið verður opnað kl. 19:30)

Dagskráin verður í aðalatriðum sem hér segir:

Njáll Sigurðsson flytur erindi sem hann kallar Eldri og yngri hefð í flutningi rímna

Kristján Hreinsson flytur frumortar vísur. 

Jón Ingvar kynnir handritsdrög að vísnabók þar sem ort er eins og honum einum er lagið.

Kristján Eiríksson kynnir vísnavefinn Braga.

Rósa Jóhannesdóttir syngur þjóðlög og leikur á fiðlu.

Ort á staðnum. Í upphafi samkomunnar verða sett fram yrkisefni og viðstaddir fá tækifæri til að sýna kunnáttu sína í vísnagerð. Þetta verða bæði fyrripartar til að botna og efni til að gera skil í heilli vísu. Dómnefnd verður á staðnum og vísurnar metnar áður en kvöldið er liðið. Skólavefurinn veitir vegleg bókaverðlaun.

Inn á milli atriða verður farið með vísur og sagðar sögur. Gestum verður gefinn kostur á að tjá sig í pontunni ef þeir luma á góðri vísu eða stuttu skemmtilegu kvæði.

Þeir sem mæta á vísnakvöldið mega spreyta sig á að gera botna við þessa fyrriparta:

 

A:  Laðar haustsins litaskrúð

      ljóð í huga mætri þjóð.

 

B:   Oft mig hefur illa dreymt

       eftir gleðistundir.    

 

eða að yrkja vísu, eða stutt kvæði, um eftirtalin efni:

 

A:  Áhugaverður pólitíkus (lýsing).

B:  Hvað finnst þér skemmtilegast að iðja?

 

Úrlausnum skal skila við innganginn þegar mætt er á staðinn. Fyrir þetta verða veitt sérstök verðlaun.

 

Með bestu kveðjum

Ragnar Ingi

 

Aðgangseyrir er kr. 500 og er kaffi innifalið.

 

 

Dansleikur:

22. okt. Haustfagnaður frá kl. 22:00 – 02:00.

Hljómsveitin Hafrót leikur fyrir dansi.

 

 

Vísnakvöld þriðjudaginn 4. okt.

 

Vísnakvöld verður haldið í Breiðfirðingabúð þriðjudaginn 4. október.

Samkoman hefst kl. 20:00 (húsið verður opnað kl. 19:30)

Dagskráin verður í aðalatriðum sem hér segir:

Þórður Helgason dósent flytur fyrirlestur sem nefnist Rímnamál á 19. öld.

Steindór Andersen kveður rímur.

Sigrún Haraldsdóttir, hestakona og hagyrðingur, fjallar um hestavísur.

Kynnt verða handritsdrög að vísnabók þar sem ort er á léttu nótunum.

Sonnettusveigar verða skoðaðir. Afar fáir íslenskir sonnettusveigar eru til en þeim hefur fjölgað nokkuð undanfarið.

 

Ort á staðnum. Í upphafi samkomunnar verða sett fram yrkisefni og viðstaddir fá tækifæri til að sýna kunnáttu sína í vísnagerð. Þetta verða bæði fyrripartar til að botna og efni til að gera skil í heilli vísu. Dómnefnd verður á staðnum og vísurnar metnar áður en kvöldið er liðið. Bókaútgáfan Hólar veitir vegleg bókaverðlaun.

 

Inn á milli atriða verður farið með vísur og sagðar sögur. Gestum verður gefinn kostur á að tjá sig í pontunni ef þeir luma á góðri vísu eða stuttu skemmtilegu kvæði.

 

Þeir sem mæta á vísnakvöldið mega spreyta sig á að gera botna við þessa fyrriparta:

 A:  Alltaf hefur íslenskt fólk

      elskað góðar vísur.

 

 B:   Kvæðin skapa andans auð

      óðarsmíð er venja góð.

        

eða að yrkja vísu, eða stutt kvæði, um eftirtalin efni:

 

 A:  Hvað er best við haustið?

 B:  Hvað viltu fá út úr vísnakvöldinu?

 

Úrlausnum skal skila við innganginn þegar mætt er á staðinn. Fyrir þetta verða veitt sérstök verðlaun.

 Með bestu kveðjum

Ragnar Ingi

 

Prjónakaffi var í Breiðfirðingabúð 26. sept. 2011 og var aðsókn góð eins og sjá má á myndum sem Robertas Mickevicius tók.

 

Bridge:

Við Breiðfirðingar og fleiri ætlum að spila á sunnudögum í vetur eins og áður. Fyrsta spilakvöldið er 18. september kl. 19.00 í Breiðfirðingabúð. Ekki þarf að skrá sig heldur einungis að mæta þegar ykkur langar til. Við ætlum að vera mjög umburðalynd og því er tækifæri fyrir þá sem óvanir eru að spila bridge að koma og æfa sig.

Æfingagjaldið er kr. 600.- pr. kvöld og er kaffi innifalið í verðinu.

Fréttabréf BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS 5. tbl. sept. 2011 17. árg. er komið út. Sjá nýjasta bréfið. 

Sækja Fréttabréf Breiðfirðingafélagsins og prenta út.

Sækja fylgirit með fréttabréfi.

Bragaþing

Landsmót hagyrðinga verður haldið í salarkynnum Hótels Stykkishólms 3. September nk.

Miðasala hefst kl. 19:00, borðhaldið kl. 20:00. Veislustjóri verður hinn góðkunni Gísli Einarsson.

Mótsgestir skrái sig sem fyrst hjá Hermanni Jóhannessyni í netfanginu hremmi@gmail.com eða í síma 866 9000/434 7765 eða Sigrúnu Haraldsdóttur í netfanginu sigrunhar@simnet.is eða í síma 824 5311.

Þeir sem vilja hótelgistingu panti hana í netfanginu hotelstykkisholmur@hringhotels.is eða í síma 430 2100.

Sjá nánar hér

 

Sumarferð

Sumarferð félagsins var farin að Árbliki 24.-.26. júní og voru 104 í matnum á laugardagskvöldið. Á föstudaginn kom fólk sér fyrir á tjaldstæðinu og í svefnpokaplássi. Um kvöldið hittist fólk í salnum og spjallaði saman og hlustaði á músik. Á laugardaginn var ekið frá Árbliki fyrir Fell og síðan niður Hundadal  og fram í Haukadal, þar sem stoppað var á Eiríksstöðum og síða var drukkið kaffi við Kirkjufellsrétt. Þá var farið að Hrútsstöðum og sýningin á Kaffi Kind skoðuð. Eftir það var farið í Leifsbúð og sýningar þar skoðaðar. Bingó var síðan í Árbliki. Um kvöldið var grillað að venju og eftir það var spilað og sungið. Hægt er að skoða myndir frá hátíðinni hér.

Fréttabréf BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS 4. tbl. júní. 2011 17. árg. er komið út. Sjá nýjasta bréfið. 

Sækja Fréttabréf Breiðfirðingafélagsins og prenta út.

Sumarferð                    

Sumarferð félagsins verður að Árbliki 24. til 26. júní.

Dagskrá: 

Á föstudagskvöldinu hittumst við í salnum og spjöllum saman og segjum brandara. Hafið með ykkur gítar eða harmonikku. 

Á laugardag kl. 10:30 verður farið á eigin bílum (menn geta sameinast í bíla) í skoðunferð um nágrennið.  Kveikt verður upp í grillinu kl 18:00 og síðan skemmtum við okkur fram eftir nóttu.

Matur: Menn nesta sig sjálfir að öðru leyti en því að félagið mun sjá um sameiginlega grillmáltíð á laugardagskvöldinu og er hún innifalin í þátttökugjaldinu.

Þátttökugjald:

Þátttökugjald til að greiða leigu á sameiginlegri aðstöðu, tjaldstæði, svefnpokaplássi í Árbliki og matinn á laugardags-kvöldinu  ofl. verður kr. 3500.- fyrir fullorðna, en frítt fyrir börn yngri en 14 ára. Þeir sem ekki gista greiða kr. 2000.-

Ferðir: Gert er ráð fyrir að fólk verði á eigin bílum.

Skráning: Skráning í ferðina og pöntun á gistingu er hjá Herði Rúnari Einarssyni í síma 892-4511 og er um að gera að panta strax.

Einnig er hægt að senda tölvupóst á bf@bf.is þar sem fram kemur fjöldi fullorðinna og barna, gisting á tjaldstæði,  í svefnpokaplássi eða hvort aðeins sé komið í mat.   

Það er mjög áríðandi að allir panti, þó að einungis sé mætt í matinn.

Stjórnin þarf að vita þátttöku fyrir þriðjudaginn 21. júní vegna matarinnkaupa ofl.

Hólmarar hittast!

Tónleikar í Gruðríðarkirkju 23. maí kl. 20:00, sjá nánar hér

ATH ! Breiðfirðingakórinn syngur m.a. á þessum tónleikum.

 

Gróðursetningaferð

Hin árlega gróðursetningaferð í Heiðmörk verður þriðjudaginn 7. júní kl. 19:00.

Í Heiðmörkinni ætlum við að grisja reitinn okkar og gróðursetja plöntur.

Að lokinni vinnu er gott að setjast niður og spjalla yfir góðum kaffisopa þannig að endilega takið með ykkur kaffi á brúsa og nesti. Öll garðverkfæri verða hins vegar til staðar.

Athugið að nú þarf að fara veginn við Rauðhóla til að komast að reitnum okkar, prenta kort.

 

 

Breiðfirðingakórinn á degi aldraðra í Breiðfirðingabúð, 8. maí 2011

Myndina tók Birgir Óskarsson

 

Dagur aldraðra

Dagur aldraðra verður sunnudaginn 8. maí kl. 14.30.

Að vanda verður á boðstólum veglegt kaffihlaðborð sem er sameiginlegt verkefni Félags breiðfirskra kvenna, stjórnar og skemmtinefndar Breiðfirðingafélagsins og Breiðfirðingakórsins.

Til skemmtunar verður m.a. söngur Breiðfirðingakórsins.

Breiðfirðingakórinn

Breiðfirðingakórinn heldur sína árlegu vortónleika laugardaginn 7. maí kl. 16 í Guðríðarkirkju í Grafarholti. Dagskráin er fjölbreytt þar sem blandað er saman hefðbundnum íslenskum kórlögum og erlendum lögum af ýmsu tagi. Aðgangseyrir er aðeins kr. 2.000 og 1.500 í forsölu hjá kórfélögum. Frítt fyrir 12 ára og yngri. Boðið verður upp á kaffi í hléi.Sjá nánar hér.

 

 

Vorfagnaður Breiðfirðingafélagsins

Vorfagnaður Breiðfirðingafélagsins verður í Breiðfirðingabúð, laugardaginn 16. apríl.

Hljómsveitin Hafrót leikur fyrir dansi. Dansað verður frá 22:00-02:00.

Breiðfirðingakórinn

Hin árlega stórskemmtun og dansleikur Breiðfirðingakórsins

verður haldin laugardaginn 5. mars í Breiðfirðingabúð.

Skemmtunin hefst. Kl. 21:00, en húsið opnar kl. 20:30

Mikill söngur og happdrætti með veglegum vinningum.

Hin fjallhressa hljómsveit "Hafrót"leikur fyrir dansi.

Verð kr. 1500,-.

Breiðfirðingakórinn

Föndurdagur 26. febrúar 2011

Hér eru fleirri myndir frá föndurdeginum

 

Föndurdagur

Laugardaginn 26. febr. kl. 13:30 - 16:00 verður föndurdagur fyrir börn. Þau þurfa að koma með skæri og grófa nál með oddi. Börn yngri en 6 ára þurfa að vera í fylgd með fullorðnum. Nánari upplýsingar gefa Erla í síma 898-6747 og Maddý í síma 695-2425.

Aðalfundarboð

Aðalfundur Breiðfirðingafélagsins verður haldinn í

Breiðfirðingabúð fimmtudaginn 24. febrúar 2011

og hefst stundvíslega kl. 20:30

1. Venjuleg aðalfundarstörf

2. Önnur mál

Kaffiveitingar

Eftirtaldir aðilar gefa kost á sér í stjórn Breiðfirðingafélagsins, starfsárið 2011-2012.

Alvilda Þóra Elísdóttir

Brynja Jónsdóttir

Einar G. Pétursson

Finnbjörn Gíslason

Hulda Karlsdóttir

Hörður Einarsson

Inga Hansdóttir

Júlíana Ósk Guðmundsdóttir

Kristinn Antonsson

Sigríður Karvelsdóttir

Sigrún Halldórsdóttir

Snæbjörn Kristjánsson

Sæunn Thorarensen

Þórunn Játvarðardóttir

 

 Prjónakaffi var í Breiðfirðingabúð 31. janúar 2011 og var aðsókn góð eins og sjá má á myndum sem teknar voru.

 

Aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn 24. febrúar n.k. en dagskrá hans verður auglýst nánar í næsta fréttabréfi.  Félagsmenn eru hvattir til að hafa samband við félaga í kjörnefnd, hafi þeir áhuga á að gefa kost á sér í stjórn félagsins fyrir 8. febrúar. Kjörnefnd  skipa þau: Hildur Óskarsdóttir, s: 8682795, Erla Þórisdóttir, s: 6957879 og Júlíus Jónsson, s: 8936535.

 

Föndurdagur

Laugardaginn 26. febr. kl. 13:30 - 16:00 verður föndurdagur fyrir börn. Þau þurfa að koma með skæri og grófa nál með oddi. Börn yngri en 6 ára þurfa að vera í fylgd með fullorðnum. Nánari upplýsingar gefa Erla í síma 898-6747 og Maddý í síma 695-2425.

Prjónakaffi var í Breiðfirðingabúð 17. janúar 2011 og var aðsókn góð eins og sjá má á myndum sem teknar voru.

Prjónakaffi í Breiðfirðingabúð

Prjónakaffið verður mánudagana 17. jan. 31. jan, 14. febr, 28. febr. 14. mars, 28. mars og 11. apríl., kl. 20:00

 

Árshátíð á þorra

Hin árlega árshátíð Breiðfirðingafélagsins á þorra verður haldin í Breiðfirðingabúð, laugardaginn 22. janúar 2011.

Borðhald hefst stundvíslega kl. 20:00, en húsið verður opnað kl.19:00.

Veislustjórar verða Jón Guðmundsson og Íris Sveinsdóttir.

Það verður spennandi að sjá upp á hverju þau Jón og Íris taka. Einnig verður danssýning.

Hljómsveit Hilmars Sverrissonar leikur fyrir dansi til kl. 02:00.

Miðaverð er kr. 5.000 kr. (sama verð og í fyrra). Þeir sem einungis koma á dansleikinn greiða kr. 1.500.

 

Tekið er við miðapöntunum hjá Þresti Elíassyni í síma 892-3068 og 561-1169.

 

Miðasalan fer síðan fram í Breiðfirðingabúð sunnudaginn 16. janúar frá kl.16:30 til 18:30.

Einnig er hægt að sækja miða miðvikudaginn 19. janúar frá kl. 19:00 - 20:30.

Miðar sem ekki hafa verið sóttir í síðasta lagi 19. janúar verða seldir öðrum.

 

Félagsmenn Breiðfirðingafélagsins og gestir þeirra hafa

forgang að miðum til 16. janúar. Tryggið ykkur því miða og pantið strax því einungis eru 185 miðar í boði.

Frá jólaskemmtun í Breiðfirðngabúð 26. desember 2010, myndir

Bridgedeild Breiðfirðingafélagsins, starfsemi  frá janúar til maí 2011, sjá nánar hér.

 

Jólaball:

26. des. Jólatrésskemmtun fyrir alla fjölskylduna kl. 14:30.

 

Nú erum við farin að æfa Jólalögin fyrir jólatónleikana sem verða haldnir í Guðríðarkirkju í Grafarholti þann 12. desember kl. 16:00.

Einsöngvarinn sem mun syngja með Kórnum að þessu sinni  er Hulda Björk Garðarsdóttir sópransöngkona.

Hrönn Helgadóttir er stjórnandi kórsins.

Tónleikarnir verða auglýstir betur síðar.

Bara muna að taka frá sunnudaginn 12 des. og kíkja við í Guðríðarkirkju. Sjáumst þá.

 

Aðventudagur:

5. des. Aðventudagur fjölskyldunnar hefst kl. 14:30.

Myndir úr afmælisgöngu 20. nóvember 2010. Gengið var frá Grafarvogskirkju og farinn hringur í kringum Grafarvoginn.

Hagyrðingakvöldið var haldið 18. nóvember og var undir stjórn Níelsar Árna Lund.

Hagyrðingar voru: Dofri Hermannsson, Halla Gunnarsdóttir, Jóhanna Fríða Dalkvist, Kristján Jóhann Jónsson, Ragnar Ingi Aðalsteinsson og Jón Kristjánsson.

Við þökkum stjórnanda og hagyrðingum fyrir góða skemmtun.

Við þetta tækifæri voru teknar nokkrar myndir.

Síðasta prjónakaffið fyrir jól var 15. nóvember og var fjölmenni. Hér eru myndir sem Robertas Mickevicius tók við það tækifæri.

Afmælisvikan:

15. nóv. Prjónakaffi kl. 20:00

 

18. nóv. Hagyrðingakvöld kl. 20:00

Hagyrðingakvöldið verður undir stjórn Níelsar Árna Lund.

Hagyrðingar eru: Dofri Hermannsson, Halla Gunnarsdóttir, Jóhanna Fríða Dalkvist, Kristján Jóhann Jónsson, Ragnar Ingi Aðalsteinsson og Sveinn Kristinsson.

Fleiri bætast e.t.v. í hópinn.

Miðaverð er kr. 1000.- (kaffi og meðlæti innifalið í verði).

 

20. nóv. Gönguferð frá Grafarvogskirkju kl. 14:00

Mæting í gönguferðina er við Grafarvogskirkju og verður lagt af stað kl.14:00. Gengið verður um nágrennið.

Boðið verður upp á kaffi og kleinur að göngu lokinni.

Tilvalin ganga fyrir alla fjölskylduna.

Prjónakaffi 25. október 2010 Myndir frá Robertas Mickevicius

Fyrsta prjónakaffið á þessu hausti var haldið 27. september. Sæunn Thorarensen sýndi hvað hún hefur verið að gera í bútasaum, sjá myndir. Á næsta prjónakaffi (11. okt.) mun Hrafnhildur Guðbjartsd. (Stella) sýna hvað hún hefur verið að sauma.

 

Bridge

Við Breiðfirðingar og fleiri ætlum að spila á sunnudögum í vetur eins og áður. Fyrsta spilakvöldið verður 19. september kl. 19.00 í Breiðfirðingabúð. Ekki þarf að skrá sig heldur einungis að mæta þegar ykkur langar til. Við ætlum að vera mjög umburðalynd og því er tækifæri fyrir þá sem óvanir eru að spila bridge að koma og æfa sig. Æfingagjaldið er kr. 600.- pr. kvöld og er kaffi innifalið í verðinu.

Sjá nánar hér.

 

Sumarferð

Sumarferð félagsins var farin að Varmalandi í Borgarfirði 25. til 27. júní. Góð mæting var í ferðina og voru um 120 manns í matnum á laugardagskvöldið. Veðrið var ágætt, þrátt fyrir rigningu af og til. Á föstudagskvöldið var leikið á harmonikkur og trommur. Um hljóðfæraleik sáu þau Bjarni Karvelsson, Birgir Kristjánsson, Elsa Kristjánsdóttir, Erlingur Snær Guðmundsson og Grétar Bernódusson. Einnig kom Kristinn Snær Guðjónsson, ungur söngvari og söng lagið "GESTALISTINN" við mikinn fögnuð áheyrenda. Á laugardaginn var farið að Hvanneyri, þar sem búvélasafnið og kirkjan skoðuð, ásamt skoðunarferð um svæðið. Síðan var haldið á Mannamótsflöt og drukkið kaffi í bakaleiðinni. Um kvöldið var grillað að venju og eftir það var spilað og sungið. Þá sagði Jón Guðbjörnsson, bóndi í Lindarhvoli, frá fyrstu kynnum sínum af Breiðfirðingafélaginu. Frásögn Jóns var mjög fræðandi og skemmtileg. Hægt er að skoða myndir frá hátíðinni hér.

Fréttabréf BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS 4. tbl. júní. 2010 16. árg. er komið út. Sjá nýjasta bréfið. 

Sækja Fréttabréf Breiðfirðingafélagsins og prenta út.

Sumarferð

Sumarferð félagsins verður farin að Varmalandi í Borgarfirði 25. til 27. júní. Aðstaðan er góð og verðum við á tjaldstæðinu hægra meginn við veginn upp að félagsheimilinu á Varmalandi.

Sundlaug er á staðnum.

 Matur:

Menn nesta sig sjálfir að öðru leyti en því að félagið mun sjá um sameiginlega grillmáltíð á laugardagskvöldinu og er hún innifalin í þátttökugjaldinu.

Þátttökugjald:  

Til að greiða leigu á sameiginlegri aðsöðu og matinn á laugardagskvöldinu:
Tjaldstæði og matur fyrir fullorðna kr. 3.500.
Svefnpokapláss í 1 manns herbergi og matur kr. 12.000.
Svefnpokapláss í 2 manna herbergi og matur kr. 7.000 á mann.

Frítt er fyrir börn 14 ára og yngri sem gista á tjaldstæði.

Þeir sem koma aðeins í mat, greiða kr. 2000.-

Ferðir:

Gert er ráð fyrir að fólk verði á eigin bílum.

Farið verður í ferð um nágrennið, sem verið er að skipuleggja. 

Skráning:

Skráning í ferðina og pöntun á gistingu er hjá Ingu Hansdóttur í síma 567-1563 og 893-3349 Herði Rúnari Einarssyni í síma 892-4511 og Bjarnheiði Magnúsdóttur í síma 862-0546 og er um að gera að panta strax.

Það er mjög áríðandi að allir panti, þó að einungis sé mætt í matinn.

Stjórnin þarf að vita þátttöku fyrir þriðjudaginn 22. júní vegna matarinnkaupa ofl.

 

Gróðursetningaferð

Hin árlega gróðursetningaferð í Heiðmörk verður þriðjudaginn 1. júní kl. 19:00.

Í Heiðmörkinni ætlum við að grisja reitinn okkar og gróðursetja plöntur.

Að lokinni vinnu er gott að setjast niður og spjalla yfir góðum kaffisopa þannig að endilega takið með ykkur kaffi á brúsa og nesti. Öll garðverkfæri verða hins vegar til staðar.

Athugið að nú þarf að fara veginn við Rauðhóla til að komast að reitnum okkar.

Sumarferð

Sumarferð félagsins verður farin að Varmalandi í Borgarfirði 25. til 27. júní.

Farið verður í ferðir, sem er verið að skipuleggja.

Matur: Menn nesta sig sjálfir að öðru leyti en því að félagið mun sjá um sameiginlega grillmáltíð á laugardagskvöldinu .

Ferðir: Gert er ráð fyrir að fólk verði á eigin bílum.

Nánari upplýsingar í næsta fréttabréfi!

 

Dagur aldraðra

Dagur aldraðra verður sunnudaginn 2. maí kl. 14.30.

Að vanda verður á boðstólum veglegt kaffihlaðborð sem er sameiginlegt verkefni Félags breiðfirskra kvenna, stjórnar og skemmtinefndar Breiðfirðingafélagsins og Breiðfirðinga-kórsins.

Til skemmtunar verður m.a. söngur Breiðfirðingakórsins.

 

Vorfagnaður Breiðfirðingafélagsins

Vorfagnaður Breiðfirðingafélagsins verður í Breiðfirðingabúð, laugardaginn 24. apríl.

Hljómsveitin Hafrót leikur fyrir dansi. Dansað verður frá 22:00-02:00.

 

Sækja auglýsingu um tónleika Breiðfirðingakórsins

Breiðfirðingakórinn heldur vortónleika sína laugardaginn 17. apríl í Guðríðarkirkju í Grafarholti. Tónleikarnir hefjast kl. 16. Dagskráin er fjölbreytt þar sem blandað er saman hefðbundnum íslenskum kórlögum og erlendum lögum af ýmsu tagi.

Einsöng með kórnum syngja þeir Davíð Ólafsson bassi og Stefán H. Stefánsson tenór. Stjórnandi kórsins er Judith Þorbergsson og um undirleik sér Helgi Már Hannesson.

Aðgangseyrir er aðeins kr. 2.000 og 1.500 í forsölu hjá kórfélögum. Frítt fyrir 12 ára og yngri. Boðið verður upp á kaffi í hléi. Við hvetjum fólk til að skella sér í Guðríðarkirkju og njóta skemmtilegra tónleika með Breiðfirðingakórnum þann 17. apríl n.k.

Breiðfirðingakórinn

Hin árlega stórskemmtun og dansleikur Breiðfirðingakórsins

verður haldin laugardaginn 6. mars í Breiðfirðngabúð.

Skemmtunin hefst. Kl. 21:00, en húsið opnar kl. 20:30

Mikill söngur og happdrætti með veglegum vinningum.

Hin fjallhressa hljómsveit "Hafrót"leikur fyrir dansi.

Verð kr. 1500,-.

Breiðfirðingakórinn

 

Næsta prjónakaffi í Breiðfirðingabúð, er 8. mars og verður þá kynning frá Skólavörubúðinni A4. Allir velkomnir.

Aðalfundarboð

Aðalfundur Breiðfirðingafélagsins verður haldinn í

Breiðfirðingabúð fimmtudaginn 25. febrúar 2010

og hefst stundvíslega kl. 20:30

1. Venjuleg aðalfundarstörf

2. Önnur mál

Kaffiveitingar

Prjónakaffi var haldið í þriðja skipti 8. febrúar og var mjög vel mætt. Við það tækifæri tók Robertas Mickevicius myndir sem hægt er að skoða hér.

Prjónakaffi var haldið í Breiðfirðingabúð mánudaginn 18. janúar og var vel sótt, 38 manns, bæði konur og karlar, ungir sem aldnir. Á boðstólum var kaffi, gos og kleinur. Mikið var spjallað, prjónað og saumað. Ákveðið var að koma aftur saman á næsta mánudag 25. janúar kl: 20:00 og síðan verði þetta annan hvern mánudag fram eftir vetri. Að sjálfsögðu voru teknar myndir við þetta tækifæri.

Námskeið í Bridge

Haldið verður námskeið í bridge í Breiðfirðingabúð, ef næg þátttaka fæst (lágmark 8 manns), fimmtudagana 21. jan, 28. jan 4. febr. og 11. febr., kl. 19:30-22:30.

Prjónakaffi í Breiðfirðingabúð

Ákveðið hefur verið að hafa prjónakaffi í Breiðfirðingabúð á mánudögum, fyrsta skipið 18. janúar kl. 20:00 ef næg þátttaka fæst. Upplýsingar gefa Erla í síma 898-6747 og Maddý í síma 695-2425. Takið með ykkur handavinnuna og sjáum hvað verður úr þessu.

 

Félagsvistin byrjar aftur 10. janúar 2010 kl: 14:00.

 

Bridge

Fyrsta spilakvöldið verður sunnudaginn 10. janúar 2010 kl. 19:00 Sjá nánar hér.

 

Frá jólaskemmtun í Breiðfirðngabúð 27. desember 2009, myndir

Jólaball:

27. des. Jólatrésskemmtun fyrir alla fjölskylduna kl. 14:30.

 

Jólatónlekar Breiðfirðingakórsins í Guðríðarkirkju tókust mjög vel og voru vel sóttir, full kirkja.

Það má finna amk. eina umsögn um tónleikana á vefnum og einnig er að finna upptökur frá tónleikunum, Guð gefi þér jólagleði , Stráið salinn greinum grænum og Heims um ból

 

Byrjendanámskeið í Bridge

Haldið var byrjendanámskeið í bridge í Breiðfirðingabúð, sjá myndir.

Kennari var Ingibjörg Guðmundsdóttir.

Góð aðsókn var að aðventudegi fjölskyldunnar. Breiðfirðingakórinn söng nokkur lög undir stjórn Judith Þorbergsson og við undirleik Helga Más Hannessonar. Síðan var spilað bíngó. Hér má sjá myndir sem teknar voru við það tækifæri.

Bráðum koma jólin
Jólatónleikar Breiðfirðingakórsins
sunnudaginn 13. desember kl. 20:00 í Guðríðarkirkju í Grafarholti
Jólatónleikar í Sandgerði
Breiðfirðingakórinn verður með tónleika laugardaginn 12. desember í Safnaðarheimilinu í Sandgerði, kl. 17:00.

Sjá nánar hér

 

Aðventudagur:

  6. des. Aðventudagur fjölskyldunnar hefst kl. 14:30

 

Jólaball:

27. des. Jólatrésskemmtun fyrir alla fjölskylduna kl. 14:30.

 

Afmælisganga

Mæting í gönguferðina var góð eða um 30 manns. Hún hófst í Breiðfirðingabúð og var genginn hringur meðfram Miklubraut að Sæbraut, síðan eftir Barðavogi og Skeiðarvogi að Breiðfirðingabúð.

Boðið var upp á kaffi og vöfflur í Breiðfirðingbúð að göngu lokinni. Hér má sjá nokkrar myndir sem teknar voru við þetta tækifæri.

Hagyrðingakvöldið var mjög vel sótt og tókst mjög vel.

Dofri Hermannssonar stjórnaði og hagyrðingar voru: Hlédís Sveinsdóttir, Jóhanna Fríða Dalkvist, Ragnar Ingi Aðalsteinsson, Hermann Jóhannesson, Kristján Jóhann Jónsson og Sveinn Kristinsson.

Ég vil fyrir hönd Breiðfirðingafélagsins þakka kærlega fyrir góða skemmtun. Að sjálfsögðu voru teknar myndir við þetta tækifæri.

 

Afmælisvikan:

19. nóv. Hagyrðingakvöld kl. 20:00

Hagyrðingakvöldið verður undir stjórn Dofra Hermannssonar.

Hagyrðingar eru: Halla Gunnarsdóttir, Hlédís Sveinsdóttir, Hlér Guðjónsson, Kristján Jóhann Jónsson, Svandís Svavarsdóttir og Sveinn Kristinsson.

Fleiri bætast e.t.v. í hópinn.

Miðaverð er kr. 800.- (kaffi innifalið í verði).

 

21. nóv. Gönguferð frá Breiðfirðingabúð kl. 14:00

Mæting í gönguferðina er við Breiðfirðingabúð og verður lagt af stað kl.14:00. Gengið verður um nágrennið.

Boðið upp á kaffi og vöfflur í Breiðfirðingbúð að göngu lokinni.

Tilvalin ganga fyrir alla fjölskylduna.

Byrjendanámskeið í Bridge

Haldið verður byrjendanámskeið í bridge í Breiðfirðingabúð, þriðjudagana 3., 10. og 24. nóvember, kl. 19:30-22:30.

Kenndur verður grunnur í Standard-sagnkerfinu.

Kennari verður Ingibjörg Guðmundsdóttir.

Námskeiðið kostar 1500 kr. (námskeiðsgögn og kaffi).

Skráning á námskeiðið fer fram hjá Herði Rúnari Einarssyni í síma 892 4511 fyrir 2. nóvember.

 

Dansleikur:

24. okt. Haustfagnaður frá kl. 22:00 – 02:00.

Hljómsveitin Hafrót leikur fyrir dansi.

 

Spiladaga bridgedeildar er hægt að sjá hér.

 

Félagsvist verður spiluð eftirtalda sunnudaga

       27. sep.  Félagsvist stakur dagur

         4. okt.  1. dagur í fjögurra daga keppni

       11. okt.  2. dagur í fjögurra daga keppni

       18. okt.  3. dagur í fjögurra daga keppni

       25. okt.  4. dagur í fjögurra daga keppni

         1. nóv.   Félagsvist stakur dagur

         8. nóv. 1. dagur í fjögurra daga keppni

       15. nóv. 2. dagur í fjögurra daga keppni

       22. nóv. 3. dagur í fjögurra daga keppni

       29. nóv. 4. dagur í fjögurra daga keppni

Spilin hefjast alla dagana stundvíslega kl. 14:00

Fyrstu verðlaun kvenna og karla verða kr. 4.000,- og önnur verðlaun kr. 2.500,- auk þess fær sá sem oftast situr við sama borð svolitlar sárabætur.

Í fjögurra daga keppni eru spilaðir fjórir dagar, en þrír bestu gilda við útreikning stiga. Veitt eru heildarverðlaun að verðmæti kr. 10.000,- fyrir fyrsta sætið og kr. 5.000 fyrir annað sætið.

Sá sem verður hæstur eftir veturinn í heild mun fá sérstakan glaðning, eins konar heiðursverðlaun í vor.

Góðar kaffiveitingar eru eftir spilin. Miðaverð er kr. 800,-.

 

Bridge:

Við Breiðfirðingar og fleiri ætlum að spila á sunnudögum í vetur eins og áður. Fyrsta spilakvöldið verður 20. september kl. 19.00 í Breiðfirðingabúð. Ekki þarf að skrá sig heldur einungis að mæta þegar ykkur langar til. Gott er að hafa makker með sér en þó er það ekki skilyrði. Við ætlum að vera mjög umburðalynd og því er tækifæri fyrir þá sem óvanir eru að spila bridge að koma og æfa sig. Æfingagjaldið er kr. 600.- pr. kvöld og er kaffi innifalið í verðinu.

 

Námskeið í línudönsum

Námskeið í línudönsum verður haldið í haust í Breiðfirðingabúð, ef næg þátttaka fæst. Kennt verður einn dag í viku, á þriðjudögum kl. 20:00 og byrjar 6. okt. Námskeiðið kostar 9.000,- á mann (9 kvöld), kennari verður Edda Karlsdóttir. Skráning fer fram hjá Þresti Elíssyni í síma 561-1169 og 892-3068 fyrir 4. okt. og veitir hann frekari upplýsingar.

 

Sumarferð

Sumarferð félagsins var farin að Skildi við Stykkishólm dagana 26. til 28. júní. Góð mæting var í ferðina og voru um 100 manns í matnum á laugardagskvöldið. Veðrið var  mjög gott. Á föstudagskvöldið var leikið á harmonikkur, gítar, trommur og munnhörpu, bæði úti og inni. Um hljóðfæraleik sáu þau Auður Baldursdóttir, Bjarni Karvelsson, Birgir Kristjánsson, Elsa Kristjánsdóttir, Erlingur Snær Guðmundsson og munnhörpuleikarinn Þorsteinn Ingimundarson. Á laugardaginn var farið að Bjarnarhöfn, þar sem kirkjan var skoðuð og sagði Hildibrandur Bjarnason frá henni. Síðan var safnið skoðað og þar var boðið upp á hákarl og harðfisk. Síðan var haldið til Grundarfjarðar og drukkið kaffi á útisvæðinu við sundlaugina. Um kvöldið var grillað að venju og eftir það var spilað og sungið þar til sól gekk til viðar. Hægt er að skoða myndir frá hátíðinni hér.

Fyrir hönd stjórnar félagsins vil ég þakka öllum fyrir komuna, með kveðju Snæbjörn Kristjánsson, formaður.

 

 

 

Sumarferð

Sumarferð félagsins verður farin að Skildi við Stykkishólm 26. til 28. júní.

Félagsheimilið Skjöldur í Helgafellssveit er um 8 km frá Stykkishólmi.

Matur:

Menn nesta sig sjálfir að öðru leyti en því að félagið mun sjá um sameiginlega grillmáltíð á laugardagskvöldinu og er hún innifalin í þátttökugjaldinu.

Þátttökugjald:

Til að greiða leigu á sameiginlegri aðstöðu, tjaldstæði og matinn á laugardagskvöldinu, verður kr. 3000.- fyrir fullorðna, en frítt fyrir börn, 14 ára og yngri. Þeir sem ekki gista greiða kr. 1700.-

Ferðir:

Gert er ráð fyrir að fólk verði á eigin bílum.

Farið verður í ferðir, sem er verið að skipuleggja.

Gisting:

Svefnpokagisting er í 25 m² herbergi og eru dínur á staðnum

Skráning:

Skráning í ferðina og pöntun á gistingu er hjá Ingu Hansdóttur í síma 567-1563 og 893-3349 Herði Rúnari Einarssyni í síma 892-4511 og Bjarnheiði Magnúsdóttur í síma 862-0546 og er um að gera að panta strax.

Það er mjög áríðandi að allir panti, þó að einungis sé mætt í matinn

Stjórnin þarf að vita þátttöku fyrir Þriðjudaginn 23. júní vegna matarinnkaupa ofl.

 

Gróðursetningaferð

Hin árlega gróðursetningaferð í Heiðmörk var farin þriðjudaginn 2. júní kl. 19:00. Það vori 17 félagar sem mættu og gróðursettu plöntur og dreifðu áburði. Sjá myndir sem teknar voru við þetta tækifæri.

 

Gróðursetningaferð

Hin árlega gróðursetningaferð í Heiðmörk verður þriðjudaginn 2. júní kl. 19:00.

Í Heiðmörkinni ætlum við að grisja reitinn okkar og gróðursetja plöntur.

Að lokinni vinnu er gott að setjast niður og spjalla yfir góðum kaffisopa þannig að endilega takið með ykkur kaffi á brúsa og nesti. Öll garðverkfæri verða hins vegar til staðar.

Athugið að nú þarf að fara veginn við Rauðhóla til að komast í reitinn okkar

 

,,Nú er bjart um norðurslóð.’’

Vortónleikar Breiðfirðingakórsins

í Félagsheimili Patreksfjarðar 9. maí kl 16:00

Kórinn flytjur ykkur fjölbreytta, létta og sérlega skemmtilega söngdagsskrá með lögum meðal annars eftir Bítlana, Bubba Mortens, Sigfús Halldórsson auk höfunda laga og ljóða vestan úr Dölum, ásamt margra annara höfunda. Þá verða flutt nokkur falleg lög úr söngleikjum og íslenskar söngperlur.

Einsöngvari með kórnum er Davíð Ólafsson, undirleikari Helgi Már Hannesson og stjórnandi Hrönn Helgadóttir.

Verð aðgöngumiða er kr. 1.500,- frítt fyrir 12 ára og yngri.

 

Hlökkum til að sjá ykkur.

Breiðfirðingakórinn.

 

Dagur aldraðra

Dagur aldraðra verður sunnudaginn 3. maí kl. 14.30.

Að vanda verður á boðstólum veglegt kaffihlaðborð sem er sameiginlegt verkefni Félags breiðfirskra kvenna, stjórnar og skemmtinefndar Breiðfirðingafélagsins og Breiðfirðinga-kórsins.

Til skemmtunar verður m.a. söngur Breiðfirðingakórsins ofl.

 

,,Nú er bjart um norðurslóð.’’

Vortónleikar Breiðfirðingakórsins

í Fella- og Hólakirkju 25 apríl kl 16:00

Nú svífum við á vængjum Sönggyðjunnar og flytjum ykkur fjölbreytta, létta og sérlega skemmtilega söngdagsskrá með lögum meðal annars eftir Bítlana, Bubba Mortens, Sigfús Halldórsson auk höfunda laga og ljóða vestan úr Dölum, ásamt margra annara höfunda. Þá verða flutt nokkur gullfalleg lög úr söngleikjum.

Einsöngvari með kórnum er Davíð Ólafsson, undirleikari Helgi Már Hannesson og stjórnandi Hrönn Helgadóttir.

Vorið er á næsta leiti og þá birtir á norðurslóðum og allir verða léttari í lund og því tilvalið að bregða sér á tónleika hjá Breiðfirðingakórnum í Fella- og Hólakirkju laugardaginn 25. apríl kl 16:00.

Boðið verður upp á kaffi og gos ásamt meðlæti í hléi.

Verð aðgöngumiða er kr. 2.000,- en í forsölu hjá kórfélögum kr. 1.500,- frítt fyrir 12 ára og yngri.

 

Hlökkum til að sjá ykkur.

Breiðfirðingakórinn.

 

 

Vorfagnaður Breiðfirðingafélagsins

Vorfagnaður Breiðfirðingafélagsins verður í Breiðfirðingabúð, miðvikudaginn 22. apríl, síðasta vetrardag.

Félag harmonikuunnenda á Suðurnesjum leikur fyrir dansi. Dansað verður frá 22:00-02:00.

 

Vortónleikar.  ,,Nú er bjart um norðurslóð.’’

í Fella- og Hólakirkju laugardaginn 25. apríl kl 16:00. Sjá nánar á Kórinn

 

Síðasti dagur í félagsvist var 29. mars og var spilað á nýju borðum. Við þetta tækifæri voru teknar myndir.

Myndir frá páskabingói í Breiðfirðingabúð, 28. mars 2009

Páskabingó

Páskabingó verður haldið í Breiðfirðingabúð laugardaginn 28. mars kl. 14:30.

Margar stærðir af páskaeggjum í vinninga.

Er ekki tilvalið að skella sér á bingó og næla sér í páskaegg.

 

Myndir frá skemmtun og dansleik Breiðfirðingakórsins, laugardaginn 7. mars 2009 í Breiðfirðingabúð.

 

Breiðfirðingakórinn

Hin árlega stórskemmtun og dansleikur Breiðfirðingakórsins verður haldin laugardaginn 7. mars í Breiðfirðngabúð.

Skemmtunin hefst. Kl. 21:00, en húsið opnar kl. 20:30. Mikill söngur og happdrætti með veglegum vinningum.

Hin fjallhressa hljómsveit "Hafrót"leikur fyrir dansi.

Verð kr. 1500,-.

 

Aðalfundur Breiðfirðingafélagsins var haldinn í Breiðfirðingabúð fimmtudaginn 26. febrúar 2009. Á fundinn mættu 40 félagsmenn.

Snæbjörn Kristjánsson var endurkjörinn formaður og einnig allir stjórnarmenn.

Að sjálfsögðu var myndavélin með og teknar nokkrar myndir. Fundargerð fundarins er að finna hér.

 

 

 

Aðalfundarboð

Aðalfundur Breiðfirðingafélagsins verður haldinn í

Breiðfirðingabúð fimmtudaginn 26. febrúar 2009

og hefst stundvíslega kl. 20:30

1. Venjuleg aðalfundarstörf

2. Lagabreytingar

3. Önnur mál

Kaffiveitingar

Aðalfundur

Senn líður að aðalfundi og hefur kjörnefnd verið skipuð.

Í kjörnefnd eru Hildur Óskarsdóttir, Erla Þórisdóttir og Júlíus Jónsson.

Þeir sem áhuga hafa á að starfa í stjórn félagsins, eru vinsamlega beðnir að hafa samband við eitthvert þeirra.

 

Félagsvist verður spiluð eftirtalda sunnudaga

        18. jan.  Stakur dagur

        25. jan.  1. dagur í fjögurra daga keppni

        01. feb.  2. dagur í fjögurra daga keppni

        08. feb.  3. dagur í fjögurra daga keppni

        15. feb.  4. dagur í fjögurra daga keppni

        22. feb.  Stakur dagur

        01. mar. 1. dagur í fjögurra daga keppni

        08. mar. 2. dagur í fjögurra daga keppni

        15. mar. 3. dagur í fjögurra daga keppni

        22. mar. 4. dagur í fjögurra daga keppni

        29. mar. Stakur dagur

Spilin hefjast alla dagana stundvíslega kl. 14:00

Fyrstu verðlaun kvenna og karla verða kr. 4.000,- og önnur verðlaun kr. 2.500,- auk þess fær sá sem oftast situr við sama borð svolitlar sárabætur.

Í fjögurra daga keppni eru spilaðir fjórir dagar, en þrír bestu gilda við útreikning stiga. Veitt eru heildarverðlaun að verðmæti kr. 10.000,- fyrir fyrsta sætið og kr. 5.000 fyrir annað sætið.

Sá sem verður hæstur eftir veturinn í heild mun fá sérstakan glaðning, eins konar heiðursverðlaun í vor.

Góðar kaffiveitingar eru eftir spilin. Miðaverð er kr. 800,-.

 

Bridge

Fyrsta spilakvöldið verður sunnudaginn 11. janúar kl. 19.00

 

Félagsvistin birjar aftur 18. janúar 2009.

 

Samkvæmisdansar, 20. janúar

Dansnámskeið í samkvæmisdönsum verður haldið á

þriðjudagskvöldum frá 20. janúar til 24. mars.

Skráning er hjá Þresti Elíassyni í síma: 892-3068 og 561-1169

Myndir frá jólaskemmtun í Breiðfirðngabúð 27. desember 2008

 

Jólaball:

27. des. Jólatrésskemmtun fyrir alla fjölskylduna kl. 14:30.

Hilmar Sverrisson og Helga Möller sjá um söng og síðan mæta jólasveinar á svæðið.

Myndir frá starfi kórsins haustið 2008 frá Guðrúnu Blöndal

Góð aðsókn var að aðventudegi fjölskyldunnar. Breiðfirðingakórinn söng nokkur lög undir stjórn Helga R. Einarssonar, Hrönn Harðardóttir las jólasögu og síðan var spilað bíngó. Hér má sjá myndir sem teknar voru við það tækifæri.

 

Jólatónleikar í Borgarnesi

Breiðfirðingakórinn verður með jólatónleika í Borgarneskirkju laugardaginn 13. desember kl. 16:00.

Miðaverð kr. 1.500,- Frítt fyrir börn 12 ára og yngri.

 

Jólatónleikar í Langholtskirkju

Jólatónleikar Breiðfirðingakórsins verða haldnir í Langholtskirkju sunnudaginn 14. desember  kl. 20:00.

Davíð og Stefán syngja jólasyrpu.

Kórstjóri er Hrönn Helgadóttir,

undirleikari Helgi Már Hannesson,

þverflautuleikari Kristjana Helgadóttir.

Miðaverð er kr. 2.000,- en í forsölu hjá kórfélögum kr. 1.500,-

Frítt er fyrir börn 12 ára og yngri.

Verið öll velkomin á kraftmikla jólatónleika Breiðfirðingakórsins.

Syngjum jólin inn í hjörtu okkar allra.

 

Aðventudagur:

 7. des. Aðventudagur fjölskyldunnar hefst kl. 14:30

Breiðfirðingakórinn syngur nokkur jólalög og síðan verður Bingó.

 

Síðast dagur í félagsvist á þessu hausti var 30. nóvember og var þá spilað á nýju borðum, sjá meðfylgjandi myndir. Félagsvistin birjar síðan aftur 18. janúar 2009.

 

Forsala aðgögnumiða á jólatónleika Breiðfirðingakórsins í Langholtskirkju verður í Breiðfirðingabúð, miðvikudaginn 3. desember, milli kl. 19:00 og 20:00

 

Auglýsingar Langholtskirkja og Borgarneskirkja

Í hinni árlegu afmælisgöngu var gengið um Fossvogsdalinn undir leiðsögn Ingibjargar Guðmundsdóttur, f.v. formanns Breiðfirðingafélagsins. Ingibjörg bauð síðan upp á kaffi, heimabakað brauð og kökur að göngu lokinni. Fyrir hönd Breiðfirðingafélagsins vil ég þakka Ingibjörgu kærlega fyrir gönguferðina og höfðinglegar móttökur. Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru í göngunni.

Hagyrðingakvöldið var mjög vel sótt og tókst mjög vel.

Dofri Hermannssonar stjórnaði og hagyrðingar voru: Svandís Svavarsdóttir, Hlédís Sveinsdóttir, Halla Gunnarsdóttir, Stefán Gíslason, Hermann Jóhannesson, Kristján Jóhann Jónsson og Sveinn Kristinsson. Fjarhagyrðingur var Ólína Þorvarðardóttir.

Ég vil fyrir hönd Breiðfirðingafélagsins þakka kærlega fyrir góða skemmtun. Að sjálfsögðu voru teknar myndir við þetta tækifæri.

Þann 18. nóvember var danskennsla í Breiðfirðingabúð, sjá myndir

Fjölmenni var í afmælisveislu Breiðfirðingafélagsins  þann 17. nóvember og við það tækifæri voru teknar myndir.

17. nóvember, kl. 20:00

Boðið verður upp á afmælistertu og kaffi. Halldór Þórðarson, Sigrún Halldórsdóttir og Jón Benediktsson leika ljúfa tónlist á harmonikur. Sýndar myndir frá starfsemi félagsins á liðnum árum og eru elstu myndirnar frá 1945.

18. nóvember, kl 20:00

Kynning á línudansi. Kennd verða grunnspor í línudansi.

19. nóvember, kl 20:00

Kórsöngur. Breiðfirðingakórinn syngur nokkur lög sem verið hafa á dagskrá hans síðustu árin. Kórinn býður upp á kaffi.

20. nóvember, kl 20:00

Hagyrðingakvöldið verður undir stjórn Dofra Hermannssonar. Hagyrðingar eru: Svandís Svavarsdóttir, Hlédís Sveinsdóttir, Stefán Gíslason, Hermann Jóhannesson, Kristján Jóhann Jónsson og Sveinn Kristinsson. Fjarhagyrðingar verða Ragnar Ingi Aðalsteinsson og Níels Árni Lund. Fleiri bætast e.t.v. í hópinn. Miðaverð er kr. 800.-

22. nóvember.

Mæting í gönguferðina er á bak við Borgarspítalann, Fossvogsmegin og verður lagt af stað kl.13:00. Gengið verður um Fossvogsdalinn undir leiðsögn Ingibjargar Guðmundsdóttur, f.v. formanns Breiðfirðingafélagsins. Boðið er upp á smá hressingu að göngu lokinni. Tilvalin ganga fyrir alla fjölskylduna.

Kvöldverður í Breiðfirðingabúð, kl 20:00  ef næg þátttaka fæst. Húsið opnar kl. 19:00 Matinn þarf að pannta fyrir þriðjudagskvöld 18. nóvember hjá Bjarnheiði í síma 862-0546 eða Ingu í síma 567-1563

Dansleikur, Kl. 22:00—02:00, Félag harmonikuunnenda á Suðurnesjun leikur fyrir dansi.

Miðaverð er kr. 2500.– fyrir mat og dansleik, en kr. 1500,- á dansleikinn.

 

 

 

Afmælishátíð UDN verður haldin í Dalabúð

8. nóvember 2008 og hefst kl. 14:00. Sjá nánar hér.

Þann 26. október lauk fyrri fjögurra daga keppninni á þessu hausti. Við það tækifæri voru teknar nokkrar myndir.

Dansleikur:

25. okt. Haustfagnaður frá kl. 21:30 – 02:00.

Hljómsveitin Hafrót leikur fyrir dansi.

 

Breiðfirðingakórinn verður með bingó í

Breiðfirðingabúð laugardaginn 18. október kl. 14:00.

Margt góðra vinninga.

Allir velkomnir.

Breiðfirðingakórinn

 

Félagsvist verður spiluð eftirtalda sunnudaga

    5. okt.   1. dagur í fjögurra daga keppni

  12. okt.   2. dagur í fjögurra daga keppni

  19. okt.   3. dagur í fjögurra daga keppni

  26. okt.   4. dagur í fjögurra daga keppni

    2. nóv.      Félagsvist stakur dagur

    9. nóv.  1. dagur í fjögurra daga keppni

  16. nóv.  2. dagur í fjögurra daga keppni

  23. nóv.  3. dagur í fjögurra daga keppni

  30. nóv.  4. dagur í fjögurra daga keppni

 

Spilin hefjast alla dagana stundvíslega kl. 14:00

Fyrstu verðlaun kvenna og karla verða kr. 4.000,- og önnur verðlaun kr. 2.500,- auk þess fær sá sem oftast situr við sama borð svolitlar sárabætur.

Í fjögurra daga keppni eru spilaðir fjórir dagar, en þrír bestu gilda við útreikning stiga. Veitt eru heildarverðlaun að verðmæti kr. 10.000,- fyrir fyrsta sætið og kr. 5.000 fyrir annað sætið.

Sá sem verður hæstur eftir veturinn í heild mun fá sérstakan glaðning, eins konar heiðursverðlaun í vor.

Góðar kaffiveitingar eru eftir spilin. Miðaverð er kr. 800,-.

 

Bridgedeild Breiðfirðingafélagsins
september til desember
21 09 08 Tvímenningur
28 09 08 Tvímenningur
05 10 08 Monrat Barómeter
12 10 08 Keppni tvímenningur 3 skipti
19 10 08 Keppni tvímenningur 3 skipti
26 10 08 Keppni tvímenningur 3 skipti
02 11 08 Tvímenningur
09 11 08 Tvímenningur
16 11 08 Keppni tvímenningur 3 skipti
23 11 08 Keppni tvímenningur 3 skipti
30 11 08 Keppni tvímenningur 3 skipti
07 12 08 Tvímenningur

 

 

Bridge:

Við Breiðfirðingar og fleiri ætlum að spila á sunnudögum í vetur eins og áður. Fyrsta spilakvöldið verður 21. september kl. 19.00 í Breiðfirðingabúð. Ekki þarf að skrá sig heldur einungis að mæta þegar ykkur langar til. Gott er að hafa makker með sér en þó er það ekki skilyrði. Við ætlum að vera mjög umburðalynd og því er tækifæri fyrir þá sem óvanir eru að spila bridge að koma og æfa sig. Æfingagjaldið er kr. 500.- pr. kvöld og er kaffi innifalið í verðinu.

Haustbingó Breiðfirðingakórsins

Laugardaginn 18. október kl. 14:00 í Breiðfirðingabúð.

Námskeið í línudönsum

Námskeið í línudönsum verður haldið í haust í Breiðfirðingabúð. Kennt verður einn dag í viku og hefst námskeiðið þriðjudaginn 30. september kl. 20:00. Kennt verður 7., 14., 21., 28. október og 4., 11., 18., 25. nóvember og 2. desember. Námskeiðið kostar 9.000,- á mann, kennarar verða Edda og Sólrún. Skráning fer fram hjá Þresti Elíssyni í síma 561-1169 og 892-3068 og veitir hann frekari upplýsingar.

Stafaganga:

Ákveðið hefur verið að athuga með þátttöku í stafagöngu.

Þeir sem hafa áhuga, eru beðnir um að hafa samband við Bjarnheiði í síma 862 0546, fyrir 30. september.

Afmælisvikan:

17. – 23. nóv. Afmælisvika félagsins verður auglýst síðar.

Aðventudagur:

  7. des. Aðventudagur fjölskyldunnar hefst kl. 14:30

Jólaball:

27. des. Jólatrésskemmtun fyrir alla fjölskylduna kl. 14:30.

Helstu atriði dagskrár eftir áramót:

24. jan.  Árshátíð á Þorra. Takið kvöldið frá strax.

  7. mars.  Dansleikur og skemmtun Breiðfirðingakórsins

28. mars.  Páskabingó

25. apríl.  Vorfagnaður frá kl. 21:30 til 02:00

  3. maí.  Dagur aldraðra.

  2. júní.  Gróðursetningarferð í Heiðmörk.

26. til 28. júní.  Sumarferð félagsins.

 

Breiðfirðingakórinn í Reykjavík

Vetrarstarf Breiðfirðingakórsins hefst 17. september næstkomandi og verða æfingar á miðvikudögum  kl. 19:45 í Breiðfirðingabúð.

Kórstjóri er Hrönn Helgadóttir.

Í vetur mun léttleikinn verða í fyrirrúmi en kórstjórinn hefur lofað okkur fjörugri söngdagsskrá.

Síðastliðið sumar fór kórinn í söngferðalag til Austurríkis,  flogið var til Vínar þar sem kórinn hélt m.a. tónleika í Péturskirkjunni. Einsöngvari með kórnum var Davíð Ólafsson. Eftir skemmtilega dvöl í Vín var ekið áleiðis til Linz. Þar söng kórinn á skemmtun kórs Antons Steingruber á sveitabúgarði en hann tók á móti kórnum í Linz og sýndi honum fallega staði í nágreninu. Síðast var ekið til Salzburgar með viðkomu á stöðum sem engan eiga sér líka. Þaðan var svo flogið heim með frábærar minningar um fegurð Austurríkis.

Auglýsing

Ungt, kraftmikið söngfólk óskast í allar raddir fyrir fjöruga söngdagskrá Breiðfirðingakórsins í vetur.

Upplýsingar gefur Hrönn Helgadóttir, kórstjóri

S: 695-2703

Sumarferð

Sumarferð Breiðfirðingafélagsins var farin að Reykhólum 27. til 29. júní.

Fjölmenni var í ferðinni og voru um 250 gestir í grillveislunni á laugardagskvöldið. Á föstudag byrjaði fólk að streyma að og strax um kvöldið safnaðist fólk saman í íþróttahúsinu. Birgir Kristjánsson spilaði á harmóniku og Auður Baldursdóttir á gítar. Á laugardagsmorgun var farið í gönguferð um Reykhóla og var Þórunn Játvarðardóttir leiðsögumaður í þeirri ferð og var síðan farið á Hlunnindasafnið, þar sem Hlynur Þór Magnússon tók á móti göngufólki, einnig sýndi Aðalsteinn Valdimarsson, skipasmiður, báta og fræddi fólk um ýmislegt varðandi þá. Eftir hádegi var farið inn í Þorskafjörð (á 19 bílum) og stoppað við minnismerkið um Kollabúðafundi og sagði Þórunn frá þeim. Síðan var haldið að minnisvarða um Matthías Jochumsson og eftir það var stoppað í Bjarkarlundi. Næst var farið að undirbúa grillveisluna sem er fastur liður í sumarferð félagsins og hófst veislan upp úr sjö. Þegar allir voru mettir tók Hljómsveitin Hafrót við og skemmtu bæði ungum sem öldnum. Aðstaðan á Reykhólum er til fyrirmyndar, þótt verðrið hefði mátt vera betra, lognið var full mikið að flýta sér. Að sjálfsögðu voru teknar myndir og er þær að finna hér.

Fyrir hönd stjórnar félagsins vil ég þakka öllum fyrir komuna, með kveðju Snæbjörn Kristjánsson, formaður.

 

Gróðursetningaferð

Hin árlega gróðursetningaferð í Heiðmörk var farin þriðjudaginn 10. júní. Það voru 13 félagar sem mættu í Heiðmörkina í mjög fallegu veðri, eins og myndir sem teknar voru sýna.

 

Sumarferð

Sumarferð félagsins verður farin að Reykhólum 27. til 29. júní. Aðstaða er góð í og við skólann, stutt í sundlaug og verslun.

Gisting:

Eftirfarandi gistimöguleikar eru í boði auk tjald-aðstöðu:

Gisting í tveggja manna herbergjum og svefnpokapláss í skólastofum.

Matur:

Menn nesta sig sjálfir að öðru leyti en því að félagið mun sjá um sameiginlega grillmáltíð á laugardagskvöldinu og er hún innifalin í þátttökugjaldinu.

Þátttökugjald:

Til að greiða leigu á sameiginlegri aðstöðu, tjaldstæði, gistingu í skólanum og matinn á laugardagskvöldinu, hljómsveit ofl. verður kr. 3000.- fyrir fullorðna, en frítt fyrir börn yngri en 14 ára. Þeir sem ekki gista greiða kr. 1700.-

Ferðir:

Gert er ráð fyrir að fólk verði á eigin bílum.

Farið verður í skoðunarferðir um nágrenni Reykhóla.

Dansleikur:

Á laugardagskvöldinu, eftir grillið mun hljómsveitin Hafrót leika fyrir dansi

Skráning:

Skráning í ferðina og pöntun á gistingu er hjá Ingu Hansdóttur í síma 567-1563 og 893-3349 Herði Rúnari Einarssyni í síma 892-4511 og Bjarnheiði Magnúsdóttur í síma 862-0546 og er um að gera að panta strax.

Það er mjög áríðandi að allir panti, þó að einungis sé mætt í matinn

Stjórnin þarf að vita þátttöku fyrir Þriðjudaginn 24. júní vegna matarinnkaupa ofl.

 

Gróðursetningaferð

Hin árlega gróðursetningaferð í Heiðmörk verður þriðjudaginn 10. júní kl. 19:00.

Í Heiðmörkinni ætlum við að grisja reitinn okkar og gróðursetja plöntur.

Að lokinni vinnu er gott að setjast niður og spjalla yfir góðum kaffisopa þannig að endilega takið með ykkur kaffi á brúsa og nesti. Öll garðverkfæri verða hins vegar til staðar.

Athugið að nú þarf að fara veginn við Rauðhóla til að komast í reitinn okkar.

 

Dagur aldraðra

Fjölmenni var á degi aldraðra eða tæplega 200. Kórinn söng nokkur lög af dagskrá sinni og síðan sýndu dansfélagar afrakstur dansnámskeiðanna vetrarins.

Hér má sjá myndir sem teknar voru á skemmtuninni.

 

Breiðfirðingakórinn

heldur sína árlegu vortónleika í Breiðholtskirkju í Mjódd, laugardaginn 3.maí kl. 17:00 Söngdagskráin er að miklu leiti saman sett af lögum sem kórinn mun flytja í tónleikaferð um Austurríki í byrjun júní næstkomandi. Hann mun meðal annars halda tónleika í Linz og Péturskirkjunni í Vín. Kórstjóri er Hrönn Helgadóttir Miðaverð er kr. 2000.-

En í forsölu hjá kórfélögum kr. 1500.- Frítt fyrir 12 ára og yngri Verið öll velkomin á kraftmikla tónleika Breiðfirðingakórsins í Reykjavík

 

Dagur aldraðra

Dagur aldraðra verður sunnudaginn 4. maí kl. 14.30.

Að vanda verður á boðstólum veglegt kaffihlaðborð sem er sameiginlegt verkefni Félags breiðfirskra kvenna, stjórnar og skemmtinefndar Breiðfirðingafélagsins og Breiðfirðingakórsins.

Til skemmtunar verður m.a. söngur Breiðfirðingakórsins ofl.

 

Reykhólavefurinn - nýr vefur opnaður. Sjá "Tenglar"

Vorfagnaður Breiðfirðingafélagsins

Vorfagnaður Breiðfirðingafélagsins verður í Breiðfirðingabúð, laugardaginn 26. apríl, fyrsta laugardag í sumri. Hilmar Sverrisson og Helga Möller leika fyrir dansi.

Dansað verður frá 22-3.

 

Myndir frá félagsvist 6. apríl 2008.

Góð mæting var á páskabingóið, eins og í fyrra. Vinningar voru páskaegg af ýmsum stærðum. Eins og venjulega voru teknar myndir við þetta tækifæri.

Margar stærðir af páskaeggjum í vinninga.

Er ekki tilvalið að skella sér á bingó og næla sér í páskaegg.

 

Myndir sem Sigrún Eyjólfsdóttir tók á skemmtun Breiðfirðingakórsins 1. mars 2008.

 

Breiðfirðingakórinn

Hin árlega stórskemmtun og dansleikur Breiðfirðingakórsins

verður haldin laugardaginn 1. mars í Breiðfirðngabúð.

Skemmtunin hefst. Kl. 21:00, en húsið opnar kl. 20:30

Mikill söngur og happdrætti með veglegum vinningum.

Hin fjallhressa hljómsveit "Hafrót"leikur fyrir dansi.

 

Aðalfundur Breiðfirðingafélagsins var haldinn í Breiðfirðingabúð fimmtudaginn 21. febrúar 2008. Á fundinn mættu 50 félagsmenn.

Snæbjörn Kristjánsson var endurkjörinn formaður.

Að sjálfsögðu var myndavélin með og teknar nokkrar myndir. Fundargerð fundarins er að finna hér.

Myndir frá félagsvist 10. febrúar 2008.

Aðalfundarboð

Aðalfundur Breiðfirðingafélagsins verður haldinn í

Breiðfirðingabúð fimmtudaginn 21. febrúar 2008

og hefst stundvíslega kl. 20:30

1. Venjuleg aðalfundarstörf

2. Önnur mál

Kaffiveitingar

 

Næstu spiladagar í Bridge, sjá mótaskrá

 

Árshátíð á þorra

Hin árlega árshátíð Breiðfirðingafélagsins á þorra var haldin í Breiðfirðingabúð, laugardaginn 19. janúar 2008. Að þessu sinni var Þorgeir Ástvaldsson veislustjóri og um dinnertónlist sá Valdimar Kristjónsson. Það var mjög ánægjulegt að hlýða á föður Þorgeirs, Ástvald Magnússon og afkomendur hans syngja nokkur lög.  

Einnig kom Ragnar Bjarnason og söng af sinni alkunnu snilld.  Hljómsveitin Miðaldarmenn lék síðan fyrir dansi.

 

Árshátíð á þorra

Hin árlega árshátíð Breiðfirðingafélagsins á þorra verður haldin í Breiðfirðingabúð, laugardaginn 19. janúar 2008.

Borðhald hefst stundvíslega kl. 20:00, en húsið verður opnað kl.19:00.

Veislustjóri verður Þorgeir Ástvaldsson.

Einnig kemur Ragnar Bjarnason og fleiri góðir gestir.

Valdimar Kristjónsson leikur dinnertónlist.

Hljómsveitin Miðaldarmenn leikur fyrir dansi til kl.3:00.

Miðaverð er kr. 4.500 kr fyrir skuldlausa félagsmenn en kr. 5.000 fyrir aðra.

Þeir sem einungis koma á dansleikinn greiða kr. 1.500.

Tekið er við miðapöntunum hjá Elínborgu Ósk Elísdóttur í síma 421-2166 og hjá Þresti Elíassyni í síma 892-3068 og 561-1169.

Miðasalan fer síðan fram í Breiðfirðingabúð sunnudaginn 13. jan. frá kl.17:00 til 18:30 og verða þá einnig tekin frá borð.

Einnig er hægt að sækja miða miðvikudaginn 16. jan. frá kl. 19:00 -20:30.

Miðar sem ekki er búið að sækja í síðasta lagi 16. jan. verða seldir öðrum.

Félagsmenn Breiðfirðingafélagsins og gestir þeirra hafa

forgang að miðum til 13. jan. Tryggið ykkur því miða og pantið strax því einungis eru 185 miðar í boði.

Fréttabréf BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS 1. tbl. jan. 2008 13. árg. er komið út.

Helstu atriði dagskrár til vors:

19. jan. Árshátíð á þorra, húsið opnar kl. 19:00.

21. febr. Aðalfundur, kl. 20:30.

  1. mars.  Dansleikur og skemmtun Breiðfirðingakórsins.

  8. mars.  Páskabingó, kl. 14:30.

26. apríl.  Vorfagnaður frá kl. 22:00 til 03:00

Félagsvist og Bridge hefjast 13. jan.

Línudans hefst 14. janúar og Samkvæmisdansar, 15. janúar.

Myndir frá jólaskemmtun í Breiðfirðngabúð 29. desember 2007

 

Jólaball:

29. des. Jólatrésskemmtun fyrir alla fjölskylduna kl. 14:30.

Hilmar Sverrisson og Helga Möller sjá um söng og síðan mæta jólaveinar á svæðið.

 

Myndir sem Kristján Steinarsson tók á jólatónleikum Breiðfirðingakórsins, sem haldnir voru í Fella- og Hólakirkju 16. desember 2007.

 

Námskeiði í línudönsum lauk 4. des. 2007. Við þetta tækifæri voru teknar nokkrar myndir.

 

Jólatónleikar í Fella– og Hólakirkju

Breiðfirðingakórinn heldur jólatónleika í Fella- og Hólakirkju, sunnudaginn 16. desember kl. 20.00.

Hin frábæra sópran söngkona Valgerður Guðnadóttir syngur einsöng með kórnum.

Kórstjóri er Hrönn Helgadóttir og undirleikari Peter Máté.

Miðaverð er kr. 2.000.-, en í forsölu hjá kórfélögum á kr. 1.500.- en frítt fyrir börn 12 ára og yngri.

Komið og upplifið frábæra jólastemmingu á glæsilegum hátíðartónleikum Breiðfirðingakórsins.

 

Myndir frá aðventudegi fjölskyldunar 2. des. 2007.

 

Myndir frá síðasta degi félagsvistar haustið 2007, myndir

 

Aðventudagur:

2. des. Aðventudagur fjölskyldunnar hefst kl. 14:30

Lesin verður jólasaga, Breiðfirðingakórinn syngur nokkur

Jólalög og síðan verður Bingó.

 

Myndir úr afmælisgöngu 17. nóvember 2007.

 

Hagyrðingakvöld

Fjölmenni var á hagyrðingakvöldi í Breiðfirðingabúð fimmtudagskvöldið 15. nóvember. Hagyrðingakvöldinu var stjórnað af Níelsi Árna Lund og hagyrðingar voru: Hinrik, Hermann, Kristján, Ragnar Ingi og Guðmundur. Eins og sjá má á myndum sem teknar voru, var glatt á hjalla og margar góðar vísur litu dagsins ljós. Við þökkum stjórnanda og hagyrðingum kærlega fyrir.

 

Afmælisvikan:

15. nóv. Hagyrðingakvöld kl. 20:00

Hagyrðingakvöldið verður undir stjórn Níelsar Árna Lund.

Hagyrðingar eru: Hinrik Hinriksson, Hermann Jóhannesson

Hlér Guðjónsson, Kristján Jóhann Jónsson Ragnar Ingi Aðalsteinsson og Guðmundur Halldórsson.

Fleiri bætast e.t.v. í hópinn. Miðaverð er kr. 800.-

17. nóv. Gönguferð um Elliðaárdalinn kl. 13:00

Mæting í gönguferðina er við Víkingsheimilið, Fossvogi og verður lagt af stað kl.13:00. Gengið verður um neðri hluta Elliðaárdalsins undir leiðsögn Ingibjargar Guðmundsdóttur, fyrrverandi formanns Breiðfirðingafélagsins.

Boðið er upp á smá hressingu að göngu lokinni.

Tilvalin ganga fyrir alla fjölskylduna.

 

Samstarf

Breiðfirðingafélagsins og Snæfellingafélagsins.

Samstarfið felst í því að félagar Breiðfirðingafélagsins geta tekið á leigu hús Snæfellingafélagsins, að Eyri á Arnarstapa.

Á heimasíðu Snæfellingafélagsins, www.123.is/eyri, er hægt að sjá hvaða helgar eru lausar og verðskrá.

Hafið samband við Gunnar Jónatansson í síma 664-6550 eða gunnar@ibt.is til að bóka.

Félagar Snæfellingafélagsins eru sérstaklega boðnir velkomnir í félagsvist, bridge, dans, á hagyrðingakvöld, haust- og vorfagnað, páskabingó, tónleika og skemmtanir Breiðfirðingakórsins og aðrar samkomur Breiðfirðingafélagsins, sem auglýstar verða í Snæfellingi og/eða á heimasíðu Snæfellingafélagsins.

Stjórnir beggja félagana eru mjög á því að þessi samvinna sé til góða fyrir bæði félögin.

 

Myndir frá afmælistónleikunum í Fella- og Hólakirkju.

 

Dansleikur:

27. okt. Haustfagnaður frá kl. 22:00 – 03:00.

Hilmar Sverrisson og Helga Möller leika fyrir dansi.

 

Afmælistónleikar í Fella- og Hólakirkju

Í tilefni af 10 ára afmæli Breiðfirðingakórsins 27. október n.k. verða tónleikar í Fella- og Hólakirkju þann dag kl. 16:00.

Gestakórar með Breiðfirðingakórnum verða Árnesingakórinn í Reykjavík og Húnakórinn.

Frítt verður inn á tónleikana.

 

Nýtt ljósaskilti á Breiðfirðingabúð

Nýtt ljósaskilti er komið á Breiðfirðingabúð. Það er Steingrímur Þorgeirsson hjá Logoflex sem gaf félaginu skiltið og setti það upp. Stjórn félagsins vill þakka Steingrími kærlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf.

 

Úr dagskrá haustsins 2007

Þann 23. sept. verður byrjað að spila bridge og viku síðar, 30. sept, hefst félagsvistin. Síðan hefjast námskeið í línudönsum 2. október og eftir áramót verður námskeið í samkvæmisdönsum.

 

Afmælisvikan:

11. – 18. nóv. Afmælisvika félagsins verður auglýst síðar.

 

Sumarferð félagsins var farin að Árbliki dagana 22. til 24. júní. Strax á föstudag tók fólk að mæta á staðinn og koma sér fyrir á tjaldstæðinu og í svefnaðstöðu í Árbliki. Um kvöldið safnaðist fólk saman í salnum, var meðal annars spilað brige og einnig var leikið á harmonikkur og gítar. Á laugardag var farið fyrir strandir. Leiðsögumaður í þeirri ferð var Grétar Sæmundsson, sem sagði mjög skemmtilega frá. Komið var við á Ormstöðum hjá Selmu Kjartansdóttur og síðan var farið í kirkjuna á Dagverðarnesi. Stoppað var við Klofning þar sem fólk gæddi sér á nesti. Skarðskirkja var einnig skoðuð og síðan stoppað við Tjaldarnes. Auðvitað var myndavélin með í för og eins og sjá má á myndunum var margt að skoða og ekki spillti veðrið.

 

Lagfæring í Heiðmörk 19. júní 2007, myndir

 

Myndir frá heimsókn Karis kórsins, Alla Breve og Västkvartetten frá Finnlandi. Einnig er hér tenging á áhugaverða heimasíðu. Jonathan Lutz

 

Sumarferð

Sumarferð félagsins verður að Árbliki 22. til 24. júní. Sjá nánar í fréttabréfinu.

Skráning í ferðina og pöntun á gistingu er hjá Ingu Hansdóttur í síma 567-1563 og 893-3349 og Bjarnheiði Magnúsdóttur í síma 862-0546 og er um að gera að panta strax.

Stjórnin þarf að vita þátttöku fyrir Þriðjudaginn 19. júní vegna matarinnkaupa ofl.

 

Tónleikar

Tónleikar í Reykholti í Borgarfirði, laugardaginn 16. júní,  kl 16:00, sjá nánar á síðu kórsins.

 

 

Gróðursetningaferð

Hin árlega gróðursetningaferð í Heiðmörk var farin þriðjudaginn 5. júní. Það voru 16 félagar sem mættu í Heiðmörkina í mjög fallegu veðri, eins og myndir sem teknar voru sýna.

 

Myndir af Dalamönnum frá árunum í kringum aldamótin 1900. Sjá nánar hér.

 

Fréttabréf BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS 4. tbl. maí. 2007 13. árg. er komið út.

 

Gróðursetningaferð

Hin árlega gróðursetningaferð í Heiðmörk verður þriðjudaginn 5. júní kl. 19:00

Í Heiðmörkinni ætlum við að grysja reitinn okkar og gróðursetja plöntur. Að lokinni vinnu er gott að setjast niður og spjalla yfir góðum kaffisopa þannig að endilega kippið með ykkur kaffi á brúsa. Öll garðverkfæri verða hins vegar til staðar.

 

 

Dagur aldraðra

Dagur aldraðra var sunnudaginn 6. maí og var vel mætt.

Kórinn söng nokkur lög, sýndur línudans og síðan spiluðu Sveinn Sigurjónsson og barnabarn hans, Silja Rut á harmonikkur. Við þetta tækifæri voru teknar myndir.

 

Dagur aldraðra

Dagur aldraðra verður sunnudaginn 6. maí kl. 14.30.

Að vanda verður á boðstólum veglegt kaffihlaðborð sem er sameiginlegt verkefni Félags breiðfirskra kvenna, stjórnar og skemmtinefndar Breiðfirðingafélagsins og Breiðfirðingakórsins.

Til skemmtunar verður m.a. söngur Breiðfirðingakórsins og einnig verður sýndur afrakstur línudansnámskeiða.

 

Vortónleikar Breiðfirðingakórsins

Breiðfirðingakórinn heldur hina árlegu vortónleika í Grafarvogskirkju, laugardaginn 21. apríl kl. 17:00.

Kórstjóri er Hrönn Helgadóttir og undirleikari Peter Máté.

Miðaverð er kr. 2.000.-, en í forsölu hjá kórfélögum á kr. 1.500.- en frítt fyrir börn 14 ára og yngri.

Einnig munu þeir Stefán Stefánsson, tenor og Davíð Ólafsson, bassi taka nokkur lög.

Komið og upplifið frábæra stemmingu á glæsilegum tónleikum Breiðfirðingakórsins.

 

Vorfagnaður Breiðfirðingafélagsins

Vorfagnaður Breiðfirðingafélagsins verður í Breiðfirðingabúð, laugardaginn 21. apríl, fyrsta laugardag í sumri. Hilmar Sverrisson og Helga Möller leika fyrir dansi.

Dansað verður frá 22-3.

 

Fréttabréf BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS 3. tbl. apríl. 2007 13. árg. er komið út. Sjá nýjasta bréfið.

 

Námskeiði í línudönsum lauk 26. mars 2007. Um 20 þáttakendur voru á námskeiðinu. Við þetta tækifæri voru teknar nokkrar myndir.

 

Félagsvist

Þann 25. mars 2007 var síðasti dagur félagsvistar á þessum vetri. Þá voru veitt verðlaun fyrir flesta slagi yfir veturinn 2006-2007 en verðlaunin hlaut Einar Kristinsson, með 3224 slagi. Við þetta tækifæri voru teknar myndir.

 

Páskabingó

Fjölmenni var á páskabingói, laugardaginn 24. mars. Við það tækifæri voru að sjálfsögðu teknar myndir.

 

Bridgedeild Breiðfirðingafélagsins vann sveitakeppni sem haldin var í Hátúni, sjá nánar á síðu deildarinnar.

 

Hin árlega skemmtun og dansleikur kórsins var haldinn 3. mars 2007.

Finnbjörn Gíslason tók nokkrar myndir við þetta tækifæri.

 

Páskabingó

Bingó í Breiðfirðingabúð, laugardaginn 24. mars kl.14.3o

Fréttabréf Breiðfirðingafélagsins

Vilt þú fá tölvupóst þegar fréttabréfið er gefið út, ef svo er, getur þú skráð þig hér. Einnig er hægt að sækja um inngöngu í Breiðfirðingafélagið.

Breiðfirðingakórinn

Hin árlega stórskemmtun og dansleikur Breiðfirðingakórsins verður haldin laugardaginn 3. mars í Breiðfirðngabúð. Skemmtunin hefst. Kl. 21:oo, en húsið opnar kl. 20:30. Mikill söngur og happdrætti með veglegum vinningum. Hin fjallhressa hljómsveit  "Hafrót"leikur fyrir dansi.

 

Aðalfundur Breiðfirðingafélagsins var haldinn í Breiðfirðingabúð fimmtudaginn 22. febrúar 2007. Á fundinn mættu 48 félagsmenn og meðal annars þurfti að kjósa nýjann formann, þar sem Hrönn Harðardóttir gaf ekki kost á sér af persónulegum ástæðum.

Snæbjörn Kristjánsson var kosinn formaður í hennar stað.

Að sjálfsögðu var myndavélin með og teknar nokkrar myndir. Fundargerð fundarins er að finna hér.

 

Aðalfundur Breiðfirðingafélagsins verður haldinn í Breiðfirðingabúð  fimmtudaginn 22. febrúar 2007 og hefst stundvíslega kl. 20:3o

1. Venjuleg aðalfundarstörf

2. Önnur mál

Kaffiveitingar

 

 

Fyrri þriggja daga keppni í félagsvist lauk 11. febrúar 2007. Við þetta tækifæri voru teknar nokkrar myndir.

 

Árshátíð á þorra

Hin árlega árshátíð Breiðfirðingafélagsins á þorra verðurhaldin í Breiðfirðingabúð laugardaginn 20. janúar 2007. Borðhald hefst stundvíslega kl. 20, en húsið verður opnað kl.19.oo

Veislustjóri verður Níels Árni Lund

Valdimar Kristjónsson leikur dinnertónlist.

Hljómsveitin Miðaldarmenn leikur fyrir dansi til kl.3.oo.

Miðaverð er kr. 4.000 kr fyrir skuldlausa félagsmenn en kr. 4.500 fyrir aðra. Þeir sem einungis koma á dansleikinn greiða kr. 1.500

Tekið er við miðapöntunum hjá Elínborgu Ósk Elísdóttur í síma 421-2166 og hjá Þresti Elíassyni í síma 892-3068 og 561-1169.

 

Miðasalan fer síðan fram í Breiðfirðingabúð sunnudaginn 14. jan frá kl.17.oo til 18.3o og verða þá einnig tekin frá borð. Einnig er hægt að sækja miða miðvikudaginn 17. jan frá kl. 19.oo -20.3o

Miðar sem ekki er búið að sækja í síðasta lagi 17. jan verða seldir öðrum.

 

Félagsmenn Breiðfirðingafélagsins og gestir þeirra hafa forgang að miðum til 14. jan.  Tryggið ykkur því miða og pantið strax því einungis eru 185 miðar í boði.

 

Félagsvist alla sunnudaga frá 14. janúar til 25. mars

Eftirtaldir spiladagar eru fram á vor:  

     

14. jan

 

Stakur dagur

21.jan

 

Parakeppni

28.jan

 

1. dagur í 3 daga keppni

4.feb

 

2. dagur í 3 daga keppni

11.feb

 

3. dagur í 3 daga keppni

18.feb

 

Stakur dagur

25.feb

 

Parakeppni

4.mar

 

1. dagur í 3 daga keppni

11.mar

 

2. dagur í 3 daga keppni

18.mar

 

3. dagur í 3 daga keppni

25.mar

 

Stakur dagur

 

   

Dansnámskeið í línudönsum

 

Línudans námskeið verður haldið á mánudagskvöldum frá 15. janúar til 26. mars, samtals 10 skipti og hefjast þau kl. 20.oo.

Verð er kr 5.000 fyrir manninn

Þau verða á eftir töldum dögum:

15/1, 22/1, 29/1, 12/2, 19/2, 26/2, 5/3, 12/3, 19/3 og 26/3

Skráning er hjá Þresti Elíassyni í síma: 892-3068 og 561-1169

 

Dansnámskeið í samkvæmisdönsum

 

Dansnámskeið í samkvæmisdönsum verður haldið á þriðjudagskvöldum frá 16. janúar til 20. mars, samtals 10 skipti og hefjast þau kl. 20.oo

Verð er kr. 6.500 fyrir manninn

Þau verða á eftirtöldum dögum:

16/1, 23/1, 30/1, 6/2, 13/2, 20/2, 27/2, 6/3, 13/3 og 20/3

Skráning er hjá Þresti Elíassyni í síma: 892-3068 og 561-1169

 

Bridge

                                                                                                                

Spilað er Bridge á hverju sunnudagskvöldi  kl.19.oo. Allir velkomnir

 

 

Eldri fréttir

 

 

 

Teljari

Hit Counter

Heimsóknir frá 8.10.2005