Til baka

Eldri fréttir

Fréttir frá 2006

Jólatrésskemmtun var haldin í Breiðfirðingabúð 30. des. Hilmar Sverrisson og Helga Möller sáu um söng og síðan mættu jólaveinar á svæðið. Að vanda var myndavélin með og teknar nokkrar myndir.

 

Breiðfirðingakórinn söng tvenna jólatónleika, í Dalabúð þann 16. desember og Grafarvogskirkju sunnudaginn 17. desember, sjá nánar á síðu kórsins

Breiðfirðingakórinn

Jólatónleikar - Guð gefi þér jólagleði.                                  

Kórinn mun syngja tvenna jólatónleika, þá fyrri í Dalabúð í Búðardal þann 16. desember kl. 20.00 miðverð kr. 1.500.- frítt fyrir 12 ára og yngri.

Í Grafarvogskirkju sunnudaginn 17. desember kl. 20.00

Þar syngur hin frábæra söngkona  Regína Ósk Óskarsdóttir einsöng með kórnum.

Kórstjóri er Hrönn Helgadóttir og undirleikari Peter Máté.

Miðaverð er kr. 2.000.-, en í forsölu hjá kórfélögum á kr. 1.500.- en frítt fyrir börn 12 ára og yngri.

Komið og upplifið frábæra jólastemmingu á glæsilegum hátíðartónleikum Breiðfirðingakórsins.

Aðventudagur fjölskyldunar var haldinn í dag 3. desember. Elstu menn telja að aldrei hafi eins margir sótt aðventuskemmtun félgsins eða um 220 manns. Það var ánægjulegt að sjá hversu margt ungt fólk mætti. Að sjálfsögðu var myndavélin með og voru teknar nokkrar myndir

Aðventudagur:

3. des.  Aðventudagur fjölskyldunnar hefst kl. 14.3o

Lesin verður jólasaga, Breiðfirðingakórinn syngur nokkur jólalög og síðan verður Bingó.                                                       

Laugardaginn 25. nóvember, kl. 21:00 sláum við upp bráðskemmtilegri söngveislu með 2 til 3 kórum ásamt einhverju öðru efni í léttum dúr. Síðan leikur hin fjallhressa hljómsveit Hafrót fyrir dansi.

Verð aðgöngumiða litlar 1.000.- krónur.

Myndir frá viðburðum afmælisvikunar er að finna hér.

Þann 12. nóvember, fór fram sveitakeppni í Bridge milli Bridgedeildar Breiðfirðingafélagsins og Sjálfsbjargar og voru 9 sveitir og var spilað á 18 borðum og voru spiluð 28 spil.  Þetta er í þriðjaskiptið sem keppnin fer fram og hafa Breiðfirðingar alltaf farið með sigur af hólmi. Þetta er góð tilbreyting að hafa svona keppni í viðbót við æfingar og keppni innan Bridgedeildar Breiðfirðingafélagsins.

 

Afmælisvikan:  12.-18. nóv     

12. nóvember er spiluð félagsvist kl.14.oo 

13. nóvember er línudansæfing kl. 20.oo 

15. nóvember er kóræfing  kl. 20.oo

16. nóvember er hagyrðingakvöld kl.  20.oo

18. nóvember er gönguferð fjölskyldunnar kl. 13.oo

 

Í tilefni af afmæli félagsins ætlum við að vera með opið hús í línudansinum og á kóræfingunni. Við bjóðum alla velkomna að líta við, fá sér kaffisopa og kynna sér starfsemina.

 

Hagyrðingakvöld 16. nóvember 

Hagyrðingakvöldið er undir stjórn Níelsar Árna Lund.

Hagyrðingar eru: Hinrik Hinriksson, Hermann Jóhannesson

Sveinn Kristinsson, Samúel Örn Erlingsson, Dofri Hermannsson ofl.

Miðaverð er: 700.-

 

Gönguferð 18. nóvember

Mæting í gönguferðina er við Nauthól og verður lagt af stað kl. 13.oo.

Gengið verður frá Nauthól og út á Ægissíðu og til baka.

Boðið er upp á smá hressingu að göngu lokinni.

Tilvalin ganga fyrir alla fjölskylduna.

 

Félagsvist: 

Eftirtaldir spiladagar eru eftir fram að jólum:

12. nóv   Annar dagur í þriggja daga keppni

19. nóv   Þriðji dagur í þriggja daga keppni

26. nóv   Félagsvist stakur dagur

 

Á nýju ári verður byrjað að spila aftur 14. janúar

Spilin hefjast alla dagana stundvíslega kl. 14.oo

 

Jólaball:

30. des. Jólatrésskemmtun fyrir alla fjölskyldunina kl. 14.3o

Hilmar Sverrisson og Helga Möller sjá um söng og síðan mæta

jólaveinar á svæðið.

 

 

Dansleikir sem eftir eru á starfsárinu:

20. jan. Árshátið á Þorra.

  Takið kvöldið frá strax.  Nánar auglýst eftir áramót.

 

3. mars  Dansleikur og skemmtun Breiðfirðingakórsins

 

21. apríl Vorfagnaður frá kl. 22.oo til 03.oo

 

Vorboðinn  

Söngfélagið Vorboðinn heldur sína árlegu söngskemmtun og dansleik í Breiðfirðingabúð laugardaginn 4. nóv. nk. og hefst dagsskráin kl. 21.oo. 

Sjá nánar.

 

21.okt   Vetrarfagnaður frá kl.22.oo til 03.oo.  Danshljómsveitin Klassik (Haukur Ingibergsson úr Upplyftingu) leikur fyrir dansi. 

Helstu viðburðir, haustið 2006.

 

Fréttabréf BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS 4. tbl. sept 2006 12. árg. er komið út.

 

Félagsvist verður spiluð eftirtalda sunnudaga: Sjá nánar.

                                                                                                 

Afmælisvikan:            

13.-19 nóv   Afmælisvika félagsins verður auglýst nánar síðar

                                                                                                     

Aðventudagur:          

  3. des.  Aðventudagur fjölskyldunnar hefst kl. 14.3o   

                                                                                                  

Jólaball:                                                                                      

30. des.  Jólatrésskemmtun fyrir alla fjölskyldunina kl. 14.3o

 

Dansleikir:                                                                                                                                      

21.okt   Vetrarfagnaður frá kl.22.oo til 03.oo.  Danshljómsveitin Klassik (Haukur Ingibergsson úr Upplyftingu) leikur fyrir dansi.  

                                                                                                                             

20.jan    Árshátið á Þorra. Takið kvöldið frá strax.  Nánar auglýst eftir áramót.

                                                                                                                             

3. mars    Dansleikur og skemmtun Breiðfirðingakórsins

                                                                                                                             

21. apríl    Vorfagnaður frá kl.22.oo til 03.oo   

                                  

Námskeið í línudönsum  

Námskeið í línudönsum verður haldið í haust í Breiðfirðingbúð.

Kennt verður einn dag í viku og hefst námskeiðið fimmtudaginn 5. október kl.20.oo

Kennt verður 5, 9, 16,23,30, 9, 13,20,27,30

Námskeiði kostar 5.000.- á mann og kennarar verða Edda og Sólrún. 

Skráning fer fram hjá Þresti Elíssyni í síma 561-1169 og 892-3068 og veitir hann frekari upplýsingar. 

    

Bridge

Við Breiðfirðingar og fleiri ætlum að spila á sunnudögum í vetur eins og áður.Fyrsta spilakvöldið verður 24. september kl. 19.oo í Breiðfirðingabúð.  Ekki þarf að skrá sig heldur einungis að mæta þegar ykkur langar til.  Gott er að hafa makker með sér en þó er þaðekki skilyrði.  Við ætlum að vera mjög umburðalynd og því er tækifæri fyrir þá sem óvanir eru að spila bridge að koma og æfa sig.  Æfingagjaldið er kr. 500.- pr. kvöld og er kaffi innifalið í verðinu.

 

 

 

 

Sumarferð félagsins vorið 2006

Í ár höldum við norður yfir Holtavörðuheiði nánar til tekið að Reykjum í Hrútafirði. Öll aðstaða  þ.e.a.s. aðgangur að matsal (ekki eldhúsi) innisalur með leiktækjum, Íþróttahús, sundlaug, heitir pottar, gufubað. Sjá nánar.

Skráning í ferðina er hjá Ingu Hansdóttur í síma 567-1563 og 893-3349 og Herði Einarssyni í síma 892-4511  og er um að gera að panta strax.

Stjórnin þarf að vita þátttöku fyrir Þriðjudaginn 20. júni vegna matarinnkaupa ofl.

Gróðursetning í Heiðmörk

Þriðjudaginn 6. júní mættu alls 21 í Heiðmörkina og unnu hörðum höndum við að snyrta, gróðursetja og setja kurl í stíga. Við þetta tækifæri voru teknar nokkrar myndir.

Fréttabréf BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS 3. tbl. júní 2006 12. árg. er komið út. Sjá nýjasta bréfið.

Munið: Sumarferð félagsins að Reykjum í Hrútafirði helgina 23.- 25. júní n.k.

Gróðursetning í Heiðmörk

Gróðursetningarferð félagsins í Heiðmörk verður þriðjudaginn 6. júní kl:19:00. Í Heiðmörkinni ætlum við að grysja reitinn okkar og gróðursetja plöntur. Að lokinni vinnu er gott að setjast niður í reitinn okkar og spjalla yfir góðum kaffisopa þannig að endilega kippið með ykkur kaffi á brúsa. Öll garðverkfæri verða hins vegar til staðar.

Bent er á að myndir frá síðustu vorferð eru á heimasíðunni okkar.

 

Dagur aldraðra var haldinn sunnudaginn 7. maí 2006. Um 130 manns mætti á samkomuna. Að vanda svignuðu borð undan tertum og kræsingum sem konur í félagi Breiðfirskra kvenna sáu um ásamt stjórn félagsins, skemmtinefnd og nokkrum kórfélögum. Breiðfirðingakórinn söng nokkur lög úr dagskrá sinni frá tónleikum kórsins í Fella- og Hólakirkju 6. maí. Danshópurinn sporið sýndi dansa, sem æfðir voru í vetur. Að sjálfsögðu var myndavélin notuð við þetta tækifæri. Myndir.

 

Dagur aldraðra verður haldinn sunnudaginn 7. maí nk. kl. 14:30 og verður dagskráin þar líkt og fyrri ár með sýnishorni af vetrardagskrá Breiðfirðingakórsins og einnig fáum við líka að sjá sýnishorn af því sem kennt hefur verið á dansnámskeiðunum í vetur. Að sjálfsögðu er einnig boðið upp á kaffi og kökur og spjall.

 

Gæfan brosir við þér!

Vortónleikar Breiðfirðingakórsins verða í Fella- og Hólakirkju laugardaginn 6. maí kl. 17:00 og í Blönduóskirkju laugardaginn 13. maí kl. 17:00. Fjölbreytt, létt og skemmtileg dagskrá.

Stjórnandi kórsins er Hrönn Helgadóttir. Undirleikari er Arnhildur Valgarðsdóttir.

Miðaverð kr. 1500, en í forsölu hjá kórfélögum kr. 1200 til þriðjudags 2. maí.

Frítt fyrir 12 ára og yngri.

Í hléi verður boðið upp á kaffi og kleinur og gosdrykki fyrir þá sem vilja.

Þar sem dagskráin er mjög létt og skemmtileg með fjörlegum undirleik er fyllilega þess virði að mæta.

Breiðfirðingakórinn.

Vorfagnaður Breiðfirðingafélagsins verður laugardaginn 22. apríl fyrsta laugardag í sumri.  Dansað verður frá 22-3.

Hljómsveitin Feðgarnir leikur fyrir dansi.

Félagsvist. Síðasti spiladagur á þessum vetri var 26. mars. Guðmundur Á. Bjarnason var hæðstur eftir veturinn með 1798 slagi. Við það tækifæri voru teknar myndir.

Þann 21. mars 2006 lauk námskeiði í samkvæmisdönsum. Fjöldi þáttakenda var um 20 eins og á línudansnámskeiðinu. Stefnt er að halda samskonar námskeið í haust, ef þátttaka er næg. Við þetta tækifæri voru teknar nokkrar myndir.

Námskeiði í línudönsum lauk 20. mars 2006. Um 20 þáttakendur voru á námskeiðinu. Við þetta tækifæri voru teknar nokkrar myndir.

Góugleði Breiðfirðingafélagsins verður laugardaginn 25. mars nk.
Dansað frá 22-3 í Breiðfirðingabúð.
Hin geysivinsæla hljómsveit SMS leikur fyrir dansi.
Þessi hljómsveit hefur margoft leikið á dansleikjum í Breiðfirðingabúð og gólfið er ávallt þéttskipað.

Hin árlega skemmtun og dansleikur Breiðfirðingakórsins var haldin laugardaginn 4. mars í Breiðfirðingabúð. Fullt var út úr húsi og virtust allir skemmta sér vel. Heiðursgestir kvöldsins voru sendiherrahjónin Bryndís Schram og Jón Baldvin Hannibalsson. Gestakór að þessu sinni var Þorrakórinn úr Dölunum. Við þetta tækifæri voru teknar nokkrar myndir.

Aðalfundur Breiðfirðingafélagsins var haldinn í Breiðfirðingabúð fimmtudaginn 23. febrúar 2006. Fundurinn var óvenju fjölmennur, þar sem 67 félagsmenn mættu á hann enda stóð mikið til því meðal annars þurfti að kjósa nýjann formann þar sem Margrét Jóhannsdóttir er flutt heim í Búðardal. Hrönn Harðardóttir var kosinn formaður í hennar stað.

Hér sjáum við Hrönn ásamt fyrrverandi formönnum Breiðfirðingafélagsins sem mættir voru á fundinn. Sjá myndir sem teknar voru á fundinum. Fundargerð fundarins er að finna hér.

Fréttabréf BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS 2. tbl. feb 2006 12. árg. er komið út. Sjá nýjasta bréfið.

AÐALFUNDARBOÐ
23. febrúar 2006
Aðalfundur Breiðfirðingafélagsins verður haldinn í Breiðfirðingabúð fimmtudaginn 23. febrúar 2006  og hefst stundvíslega kl. 20:30.
Venjuleg aðalfundarstörf
Önnur mál
Stjórnin
Félag Breiðfirskra kvenna sér um kaffi og meðlæti.

Félagsvistin er alltaf á sínum stað annan hvern sunnudag  kl. 14:00.

 

Bridge er spilað öll sunnudagskvöld og hefjast spilin kl. 19:00

 

Skákdeild Breiðfirðingafélagsins kynnir, sjá nánar.

 

Hin árlega skemmtun og dansleikur Breiðfirðingakórsins verður haldin laugardaginn 4. mars í Breiðfirðingabúð, sjá nánar.

 

Góugleði Breiðfirðingafélagsins verður laugardaginn 25. mars nk, sjá nánar.

 

Vorfagnaður Breiðfirðingafélagsins verður laugardaginn 22. apríl, sjá nánar.

 

Dagur aldraðra verður haldinn sunnudaginn 7. maí nk. kl. 14:30, sjá nánar.

 

Vorferðin í Heiðmörk verður þriðjudagskvöldið  6. júní kl 19.oo, sjá nánar.

 

Sumarferð að Reykjum í Hrútafirði. Helgina 23.- 25. júní, sjá nánar.

Árshátíð á þorra var haldin í Breiðfirðingabúð þann 21. janúar 2006. Uppselt var á hátíðina og komust færri að en vildu. Við þetta tækifæri voru teknar myndir, bæði af undirbúningi og síðan á hátíðinni sjáfri.

Bridge 2006, spilað er öll sunnudagskvöld kl. 19:00

Dansnámskeið 2006. Boðið verður upp á tvenns konar dansnámskeið á vorönn ef næg þátttaka fæst.

Félagsvistin 2006, fyrsti spiladagur 15. janúar

Dansleikir:

21. jan.   Árshátíð á þorra.
 4. mars  Dansleikur og skemmtun Breiðfirðingakórsins.
25. mars Góugleði, hljómsveitin SMS leikur fyrir dansi.
22. apríl  Sumarfagnaður frá kl. 22 til 3.

                Hljómsveitin Feðgarnir leika fyrir dansi.

Aðalfundur:
23. febrúar Aðalfundur Breiðfirðingafélagsins kl. 20:30. Nánar í næsta fréttabréfi.
Dagur aldraðra:
7. maí Samkoma sem hefst klukkan 14:30.
Sumarferð:
23.-25. júní Sumarferð félagsins. Farið verður að Reykjum í Hrútafirði.

Árshátíð á þorra

Árshátíð á þorra verður laugardaginn 21. janúar. Takið kvöldið frá strax. Veislustjóri verður Gísli Einarsson og hinir sprellfjörugu Miðaldamenn leika fyrir dansi.

 

Fréttir frá 2005

Breiðfirðingakórinn getur bætt við fólki í allar raddir.

Áhugasamir hafi samband við Hrönn Helgadóttur söngstjóra í síma 557-9996 eða 695-2703 en hún sér um raddprófanir fyrir alla þá er óska inngöngu í kórinn eða Birgi Kristjánsson formann s. 554-4459 / 894-0359.

Myndir frá jólatónleikum Breiðfirðingakórsins, sjá nánar

Annan dag jóla, 26. desember,  var jólatrésskemmtun Breiðfirðingafélagsins haldin í Breiðfirðingabúð. Við það tækifæri voru eftirfarandi myndir teknar.

Árshátíð á þorra 21. janúar.

Jólaball

Annan dag jóla, 26. desember,  verður jólatrésskemmtun félagsins í Breiðfirðingabúð og hefst hún kl. 14:30.

Ásgeir Páll sér um ballið eins og í fyrra og boðið verður upp á kaffi og kökur. Jólasveinar eru einnig væntanlegir á ballið.

Breiðfirðingakórinn hélt  jólatónleika í Fella- og Hólakirkju sunnudaginn 18. desember.

Það voru um 160 manns bæði börn og fullorðnir sem mættu á tónleikana.

Breiðfirðingakórinn heldur  jólatónleika í Fella- og Hólakirkju sunnudaginn 18. desember kl. 20:00.

Kórstjóri er Hrönn Helgadóttir

Forsala að tónleikunum er hafin hjá kórfélögum og kostar miðinn 1200 kr.

Aðgangseyrir er 1500 kr. ef miði er keyptur við innganginn.

Frítt fyrir 12 ára og yngri.

Boðið verður upp á kaffi og piparkökur í hléi.

Á sögnskránni eru jólalög úr ýmsum áttum.

Sunnudaginn 4. desember var hinn árlegi aðventudagur fjölskyldunnar í Breiðfirðingabúð. Samkoman hófst kl. 14:30 með ávarpi formanns. Við það tækifæri voru eftirfarandi myndir teknar.

Afmælisgangan 19. nóvember 2005, sjá "Myndir"

Eggert Þór Bernharðsson sagnfræðingur hefur skrifað skemmtilegar greinar um átthagafélögin, sjá "Aðsent efni"

Hagyrðingakvöldið var haldið á afmælisdegi félagsins og við það tækifæri voru teknar nokkrar myndir, sjá nánar

Afmælisganga verður 19. nóvember, hittumst við Perluna kl. 13:00

Göngustjóri verður Ingibjörg Guðmundsdóttir, sjá nánar

Hagyrðingakvöld verður haldið 17. nóvember, kl. 20:00

Stjórnandi verður Ragnar Ingi Aðalsteinsson.

Í ár bætast ný andlit í hóp hagyrðinganna en eins og ávallt verður um vaska sveit að ræða.

Tónleikar í Fella- og Hólakirkju, 12. nóv kl. 17:00, sjá nánar

Fréttabréf BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS 6. tbl. nóv 2005 11. árg. er komið út. Sjá nýjasta bréfið.

22. okt.         

Vetrarfagnaður frá kl. 22 til 3. Danshljómsveitin

Klassik (Haukur Ingibergs. úr Upplyftingu) leikur

fyrir dansi.  – fjölmennið og takið með ykkur gesti.

 

Fréttabréf BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS 5. tbl. sept 2005 11. árg. er komið út.

Nokkur atriði úr dagskrá haustsins 2005

Bridge hefst sunnudaginn 25. sept. kl. 19:00

Félagsvistin hefst sunnudaginn 2. október kl. 14:00

Dans (línudans) hefst fimmtudaginn 6. október kl. 20:00

Vetrarfagnaður verður að sjálfsögðu 22. október

Hagyrðingakvöld verður haldið 17. nóvember

Afmælisganga verður 19 nóvember

Aðventudagurinn verður 4. desember

Jólaballið verður annan jóladag 26. desember

Fréttabréf BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS 4. tbl. júní 2005 11. árg. er komið út.

Sumarferð Breiðfirðingafélagsins að Lýsuhóli 24.-26. júní 2005

Eiríksstaðahátíð
Nú er Eiríksstaðahátíð orðin árlegur viðburður í Dölum sem margt fólk úr Breiðfirðingafélaginu sækir. Hátíðin er haldin aðra helgina í júlí, 8. - 10. júlí.

Fréttabréf BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS 3. tbl. apríl 2005 11. árg. er komið út.

Til baka