UDN 90 ára
Afmælishátíð UDN verður haldin í Dalabúð
8. nóvember 2008 og hefst kl. 14:00.
Á sama tíma verður sýning á ýmsum munum, s.s. fatnaði, fánum, bikurum o.fl., sem tengjast sögu UDN (Ungmennasambands Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga) og aðildarfélaganna. Jafnframt verður sýning á ljósmyndum frá ýmsum viðburðum og einnig verður ýmsum gömlum og nýjum myndum varpað upp á skjá og þá bara spurning hver þekkir hvern.
Boðið verður upp á dýrindis kaffiveitingar. Allir velkomnir.
Nokkuð hefur nú þegar borist til undirritaðrar af munum frá aðildarfélögum UDN en þeir sem luma á góðum gripum eru vinsamlegast beðnir um að setja sig í samband við mig við fyrsta tækifæri.
F.h. stjórnar UDN
Margrét Jóhannsdóttir
sími: 847-9974, 587-6460
netfang: mjo@simnet.is