trippel c s piller http://norgepiller.com/kjop-cialis/ hvor lenge du vil beholde medisinske poster

Fréttir frá Breiðfirðingafélaginu

Mynd frá Breiðfirðingafélagið.

Breiðfirðingafélagið 80 ára

 Í dag, 17. nóvember eru 80 ár liðin frá því að 67 manns mætti á fund í Oddfellowhúsinu í til að ræða stofnun félags Breiðfirðinga. Frummælandi á fundinum var Guðmundur Jóhannesson gjaldkeri, ættaður frá Skáleyjum, en hann átti eftir að vera formaður félagsins fyrstu sex árin. Fundarstjóri þetta kvöld var Andrés Straumland og Jóhannes úr Kötlum ritaði fundargerð af mikilli list. Fyrir fundinum lá uppkast að lögum félagsins sem undirbúningsnefnd hafði samið.

Til máls tóku Jón Sívertsen, Guðmundur Jóhannesson, Guðbjörn Jakobsson, Ragnar Jóhannesson, Guðmundur Guðmundsson, Óskar Bjartmarz og Oscar Clausen. Lög félagsins voru síðan borin upp til atkvæðagreiðslu ásamt breytingatillögum sem fram höfðu komið á fundinum og voru þau samþykkt samhljóða.

Þá var gengið til stjórnarkosningar og auk Guðmundar voru eftirtaldir kosnir í fyrstu stjórn félagsins, Oscar Clausen rithöfundur frá Stykkishólmi gjaldkeri, Snæbjörn Guðjón Jónsson húsgagnasmíðameistari frá Sauðeyjum meðstjórnandi auk meðstjórnendanna Filippíu Blöndal eigandi Hattabúðar Reykjavíkur og Ásu Jóhannsdóttur frá Höskuldsstöðum í Dalasýslu. Endurskoðendur voru kjörnir Ragnar Jóhannesson og Jóhannes úr Kötlum. Að fundarstörfum loknum las Oscar Clausen upp breiðfirskar sagnir.

Enn þann dag í dag er félagið í fullum blóma og í kvöld munu félagsmenn koma saman í Breiðfirðingabúð til að fagna stórafmælinu.

Additional information