trippel c s piller http://norgepiller.com/kjop-cialis/ hvor lenge du vil beholde medisinske poster

Fréttir frá Breiðfirðingafélaginu

Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur flytur fyrirlestur

Auðar saga djúpúðgu

Blug og Vilborg 002

,,Þykjast menn varla dæmi til vita að einn kvenmaður hafi komist í brott úr þvílíkum ófriði með jafnmiklu fé og föruneyti. Má af því marka að hún var mikið afbragð annarra kvenna." 

Þannig farast sögumanni Laxdælu orð um ferð Auðar djúpúðgu frá Skotlandi til Íslands í lok níundu aldar. Vilborg Davíðsdóttir lauk á síðasta ári þríleik sínum um viðburðaríkt líf landnámskonunnar þar sem hún spinnur lokaþráðinn út frá þessum þekktu orðum. 

Bækurnar Auður, Vígroði og Blóðug jörð hafa hlotið fádæmagóðar viðtökur og yfir 1.600 manns hlýtt á frásögn Vilborgar um Auði á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi þar sem uppselt hefur verið á allar 22 sýningar hennar. 

Hún flytur fyrirlestur í Breiðfirðingabúð 7. febrúar kl. 20 og segir þar í máli og myndum frá háskalegri ferð Auðar yfir hafið, um Orkneyjar og Færeyjar, til landnáms í Dölum. Saman við sögu konunnar sem á engan sinn líka í landnámssögu Íslands fléttar hún frásögn Landnámabókar af þrælauppreisn á suðurströnd Íslands þar sem nýja landið var vígt blóði.

 

Umfjöllun um bækur Vilborgar má finna á vefsíðunni davidsdottir.is

 

 

Additional information