trippel c s piller http://norgepiller.com/kjop-cialis/ hvor lenge du vil beholde medisinske poster

Fréttir frá Breiðfirðingafélaginu

Árshátíð á þorra

 

Hin árlega árshátíð Breiðfirðingafélagsins á þorra verður haldin í Breiðfirðingabúð, laugardaginn 9. febrúar 2019.

Borðhald hefst stundvíslega kl. 19:30, en húsið verður opnað kl. 18:30.

Og þorramaturinn er sá allra besti.

 

Guðni Ágústsson fyrrverandi ráðherra mun sjá um veislustjórn.

Hanna Dóra Sturludóttir frá Búðardal syngur.

Hilmar Sverrisson og Kristján Snorrason leika fyrir dansi til kl. 01:00.

 

Miðaverð er kr. 8.000 kr.

Þeir sem einungis koma á dansleikinn greiða kr. 2.000.

Nauðsynlegt er að panta miða hjá Þresti Elíassyni í síma 892- 3068.

Miðasalan fer síðan fram í Breiðfirðingabúð sunnudaginn 3. febrúar frá kl.16:30 til 18:30.

Einnig er hægt að sækja miða miðvikudaginn 6. febrúar frá kl. 19:00 - 20:30.

Miðar sem ekki hafa verið sóttir í síðasta lagi 6. febrúar verða seldir öðrum. 

Félagsmenn Breiðfirðingafélagsins og gestir þeirra hafa forgang að miðum til 6. febrúar.

Additional information