Sumarferð Breiðfirðingafélagsins 2026
- Ólöf Inga Guðbjörnsdóttir
- 3 days ago
- 1 min read
Updated: 2 days ago

Söguslóðir í Dölum.
Innifalið í verði : Fararstjórn, aðgangseyrir, gisting, morgunmatur og tveggja rétta kvöldverður, tveir léttir hádegisverðir og síðdegiskaffi á sunnudeginum.
Verð fyrir tvíbýli og tvo í rútu 100.000 eða 50.000 pr. mann
Verð fyrir einbýli og einn í rútu 64.000.
Verð fyrir fjóra saman í 1 herbergi 172.000. eða 43.000 pr mann. (eitt herbergi í boði)
Leiðsögumaður Þórólfur Sigurðsson.
Laugardagur 29. ágúst
9:00 lagt af stað frá Breiðfirðingabúð.
Stutt WC stopp í Borgarnesi.
Við munum aka Snóksdalshringinn.
Stoppum á Seljalandi í Hörðudal í súpu og brauð.
Við förum að Eiríksstöðum í Haukadal og fáum leiðsögn um bæ Eiríks Rauða.
Svo stoppum við í Hjarðarholti og skoðum kirkjuna.
Þá höldum við að Laugum í Sælingsdal þar sem við gistum. Hægt verður að fara í sund og heitapottinn.
Snæðum tveggja rétta kvöldverð og kaffi eftir matinn. Kannski náum við að gera eitthvað skemmtilegt eftir kvöldmat.
Sunnudagur 30. ágúst
9:00 lagt af stað frá Laugum eftir að hafa snætt morgunmat.
Leiðin liggur í kringum strandir og mun Þórólfur fræða okkur um öll leyndarmálin sem verða á vegi okkar.
Hádegisstopp verður á Vogi country lodge.
Við munum skoða kirkjuna á Tjarnalundi og svo liggur leiðin inn í Ólafdal og þar munum við njóta leiðsagnar frá Guðmundi Gunnarssyni.
Handverkshúsið Assa í Króksfjarðarnesi ætlar að taka á móti okkur með kaffi, vöfflum og rjóma áður en heim verður haldið.
Svo endum við aftur við Breiðfirðingabúð!!
Skráning í ferðina er til 20. maí með pósti á netfangið steinadori@internet.is eða í síma 8444046. Takmarkað framboð er í ferðina.
_edited_edited_edited_edited.jpg)



Comments