top of page

Af aðalfundi 2026

Aðalfundur Breiðfirðingafélagsins var haldinn fimmtudaginn 19. febrúar. Mættir voru 28 félagar.

Þar fóru fram öll venjuleg aðalfundarstörf auk þess sem lögð var fram tillaga að breytingum á samþykktum félagsins. Ingibjörg Guðmundsdóttir lagði fram breytingatillögu sem var lögð fyrir fundinn fyrst og samþykkt með 19 af 28 atkvæðum. Þar með bætist þessi viðbót við samþykktir félagsins undir kaflanum um deildir:


"Jafnframt starfrækir félagið sérstaka deild sem gerir tillögur að viðburðum og styrkjum til menningar og framfaramála í samræmi við tilgang og markmið félagsins. Heiti deildarinnar er: Menningar - og framfaradeild Breiðfirðingafélagsins. Stjórn félagsins skipar þriggja manna stjórn fyrir deildina. Stjórn deildarinnar skiptir sjálf með sér verkum.

Stjórn Breiðfirðingafélagsins samþykkir reglur um styrkúthlutanir samkvæmt tillögu stjórnar deildarinnar og skulu þær auglýstar á vef félagsins.

Stjórn félagsins ákveður árlega styrkupphæð".


Svo var kosið í stjórn sem nú er skipuð eftirfarandi aðilum sem munu skipta með sér verkum á næsta stjórnarfundi.

Ólína Kristín Jónsdóttir, formaður frá Mýrartungu II, Reykhólahreppi

Ásthildur Sóllilja Haraldsdóttir frá Magnússkógum

Guðný Dóra Gestsdóttir frá Grund á Fellsströnd

María Játvarðardóttir frá Miðjanesi, Reykhólahreppi

Ólöf Inga Guðbjörnsdóttir frá Magnússkógum

Steinunn Harðardóttir frá Kverngrjóti í Saurbæ

Sólveig Aradóttir frá Patreksfirði

Til vara:

Edda Gerður Guðmundsdóttir frá Mýrartungu I, Reykhólahreppi

Ingibjörg Guðmundsdóttir frá Magnússkógum

Sigurbjörn Einarsson frá Sælingsdalstungu

Sigurjón Björn Sveinsson frá Sveinsstöðum


Önnur mál einkenndust af hvatningu til að klára að flytja gamalt efni yfir á nýju heimasíðuna og halda henni lifandi. Og svo komu fram ýmsar hugmyndir að viðburðum sem mögulega myndu draga yngra fólkið í félagið.


Við vonum að þið hjálpið okkur öll við að halda félaginu gangandi og hafið samband ef þið viljið koma einhverju á framfæri.


Fyrir hönd stjórnar, Ólína Kristín


 
 
 

Recent Posts

See All
Áhugavert málþing um Svefneyinginn Eggert Ólafsson

Eggert Ólafsson. Þriggja alda minning     Félag um átjándu aldar fræði heldur málþing undir yfirskriftinni   Eggert Ólafsson. Þriggja alda minning   í Þjóðarbókhlöðu, fyrirlestrasal á 2. hæð, laugarda

 
 
 

Comments


Breiðfirðingafélagið

Faxafeni 14

108 Reykjavík

kennitala: 480169-1669

netfang: bf@bf.is

  • Facebook

bf.is  © 2025 Breiðfirðingafélagið    

bottom of page