Kór Breiðfirðingafélagsins
- sollaara
- 12 hours ago
- 1 min read

Nú fer senn að líða að upphafi kórstarfs Breiðfirðingakórs þ.e. í september nk.
Kórinn vill mjög gjarnan bæta við sig fleira söngfólki í allar raddir, og nú
leitum við til ykkar í kórnum og velunnurum Breiðfirðingafélagsins sem og
Barðstrendingafélagsins.
Kórinn er opinn öllum áhugasömum, ekki bara Breiðfirðingum, enda er hann
starfandi í Reykjavík og skemmtilegur og góður félagsskapur. Margir kórmeðlima
hafa sungið í kórnum allt frá upphafi, og er þetta félagsstarf því orðið ómissandi
fastur liður margra, og starfið orðið rótgróið. Tvennir tónleikar eru á ári; jólatónleikar
og vortónleikar með fullri efnisskrá. Okkur langar að bjóða fleiri velkomna í kórinn
okkar á öllum aldri, engin aldurstakmörk og bendum á að fyrsta árið er og hefur alltaf
verið ókeypis fyrir nýja kórfélaga. Einu skilyrðin eru að viðkomandi söngvari syngi
hreint og í réttri tóntegund og geti fylgt ábendingum kórstjóra.
Endilega hjálpið okkur að láta vita að kórinn vill fjölga söngfólki í kórinn, þeim sem
eru að leita sér kór að syngja í eða bara einhverskonar félagsstarfi.
Áhugasamir hafi endilega sambandið við Svövu Viktoríu Axelsdóttur Clausen formann kórsins í síma 695 2416 eða Kristínu R. Sigurðardóttur kórstjóra í síma 699 4686
_edited_edited_edited_edited.jpg)


Comments