Síðasti séns að ná sér í sæti í sumarferðina.
- Ólöf Inga Guðbjörnsdóttir
- 1 day ago
- 1 min read
Langar þig með í Sumarferð Breiðfirðingafélagsins 29. – 30. ágúst 2026

Vegna forfalla eru laus 2 herbergi fyrir einn verð 64.000 per herbergi og 1 herbergi fyrir fjóra verð 172.000 (43.000,- per mann.)
Farið verður á Söguslóðir í Dölum.
Innifalið í verði : Fararstjórn, aðgangseyrir, gisting, morgunmatur og tveggja rétta kvöldverður, tveir léttir hádegisverðir og síðdegiskaffi á sunnudeginum.
Leiðsögumaður Þórólfur Sigurðsson.
Laugardagur 29. ágúst 9:00 lagt af stað frá Breiðfirðingabúð. Stutt WC stopp í Borgarnesi. Við munum aka Snóksdalshringinn. Stoppum á Seljalandi í Hörðudal í súpu og brauð. Við förum að Eiríksstöðum í Haukadal og fáum leiðsögn um bæ Eiríks Rauða. Stoppum í Hjarðarholti og skoðum kirkjuna. Þá höldum við að Laugum í Sælingsdal þar sem við gistum. Hægt verður að fara í sund og heitapottinn. Snæðum tveggja rétta kvöldverð og kaffi eftir matinn. Kannski náum við að gera eitthvað skemmtilegt eftir kvöldmat.
Sunnudagur 30. ágúst 9:00 lagt af stað frá Laugum eftir að hafa snætt morgunmat. Leiðin liggur í kringum strandir og mun Þórólfur fræða okkur um öll leyndarmálin sem verða á vegi okkar. Hádegisstopp verður á Vogi country lodge. Við munum skoða kirkjuna á Tjarnalundi og svo liggur leiðin inn í Ólafsdal og þar munum við njóta leiðsagnar frá Guðmundi Gunnarssyni. Handverkshúsið Assa í Króksfjarðarnesi ætlar að taka á móti okkur með kaffi, vöfflum og rjóma áður en heim verður haldið. Svo endum við aftur við Breiðfirðingabúð!! Skráning í ferðina er með pósti á netfangið steinadori@internet.is eða í síma 8444046.
_edited_edited_edited_edited.jpg)



Comments