top of page

Áhugavert málþing um Svefneyinginn Eggert Ólafsson

Eggert Ólafsson. Þriggja alda minning

 

 

Félag um átjándu aldar fræði heldur málþing undir yfirskriftinni

 

Eggert Ólafsson. Þriggja alda minning

 

í Þjóðarbókhlöðu, fyrirlestrasal á 2. hæð, laugardaginn 14. febrúar 2026.

 

Málþingið hefst kl. 13:30 og því lýkur eigi síðar en kl. 16:15.

 

Að vanda verða flutt fjögur erindi. Dagskrá verður sem hér segir:

  

Guðrún Laufey Guðmundsdóttir, sérfræðingur á 

Handritasafni Landsbókasafns Íslands–Háskólabókasafns

„Nú skulum vér skiljast að“. Veislu- og gleðisöngvar Eggerts Ólafssonar

 

Sigurður Steinþórsson, prófessor emeritus í jarðfræði við Háskóla Íslands

Jarðfræðirannsóknir Eggerts Ólafssonar

 

KAFFIHLÉ

 

Guðrún Ása Grímsdóttir, rannsóknarprófessor emeritus við 

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum 

Fólkið í Ferðabók Eggerts og Bjarna. Mat á íbúum einstakra héraða eins og birtist 

í Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar um ferðir þeirra á Íslandi árin 1752–1757

 

Þórir Óskarsson, bókmenntafræðingur

„Það var hann Eggert Ólafsson“. Helgur maður eða úrelt þjóðskáld?

 

Fundarstjóri: Jón Kristinn Einarsson,

 doktorsnemi í sagnfræði við Chicago-háskóla

 

Flutningur hvers erindis tekur 20 mínútur og 510 mínútur 

gefast til fyrirspurna að loknu hverju erindi.

 

Félagið býður upp á kaffi og konfekt í hléi, sem verður um 2530 mínútur. 

Á Íslandssafni á 1. hæð er nýopnuð sýning á handritum Eggerts Ólafssonar.

   

Útdrættir úr erindum liggja frammi á málþinginu og verða þar aðgengilegir 

öllum málþingsgestum. Þeir eru einnig birtir á heimasíðu félagsins

 
 
 

Breiðfirðingafélagið

Faxafeni 14

108 Reykjavík

kennitala: 480169-1669

netfang: bf@bf.is

  • Facebook

bf.is  © 2025 Breiðfirðingafélagið    

bottom of page